Einkunnir leikmanna Íslands eftir slátrun í Búlgaríu - Óstöðvandi Andri Lucas

433

Föstudaginn 13. nóvember 2026 21:46

Andri Lucas Guðjohnsen, Mynd: DV/KSJ

Íslenska karlalandsliðið lék sér að Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.

Það var aldrei spurning um sigur Íslands sem fékk víti eftir um stundarfjórðung þegar Orri Steinn Óskarsson fór niður í teignum. Andri Lucas Guðjohnsen, sem hefur verið sjóðheitur með Blackburn í ensku B-deildinni undanfarið, skoraði af öryggi úr spyrnunni.

Orri var sjálfur á ferðinni með mark skömmu síðar. Átti hann góðan sprett eftir frábæran bolta frá Herði Björgvini Magnýssini og afgreiddi vel í markið. 

Staðan í hálfleik var 0-2 og snemma í þeim seinni kom þriðja markið. Þá sendi Brynjólfur Willumsson boltann fyrir markið og Emil Tsenov setti boltann í eigið net.

Þá var komið að Andra á ný. Hann skoraði annað mark sitt og fjórða mark Íslands á 68. mínútu og fullkomnaði þrennuna um tíu mínútum síðar. 

Lokatölur 0-5. Ísland getur gulltryggt sigur í riðlinum með jafntefli gegn Lúxemborg á heimavelli á mánudag.

Hákon Rafn Valdimarsson - 6
Hafði afskaplega lítið að gera í þessum leik

Guðlaugur Victor Pálsson - 6
Fín frammistaða hjá Gulla.

Stefán Teitur Þórðarson (9') - Spilaði of lítið til að fá einkunn
Meiddist því miður snemma leiks.

Daníel Leó Grétarsson (72') - 6
Það var ekki mikið að gera hjá miðvörðum Íslands í kvöld.

Logi Tómasson - 8
Frábær frammistaða varnar- og sóknarlega hjá Loga. Gerir frábærlega áður en Ísland fær vítið og var óheppinn að skora ekki.

Mikael Egill Ellertsson - 7
Var mjög líflegur og virðist vera að negla sína stöðu í liðinu.

Hákon Arnar Haraldsson - 7
Fínasti leikur og stoðsending hjá einum allra hæfileikaríkasta leikmanni Íslands.

Ísak Bergmann Jóhannesson (72') - 7
Afskaplega vinnusamur og duglegur að finna fremstu menn.

Kristall Máni Ingason (29') - 7
Var hvað besti maður Íslands áður en hann fór meiddur af velli um miðjan fyrri hálfleikinn. Vonandi ekki of alvarlegt.

Andri Lucas Guðjohnsen - 9 - Maður leiksins
Skorar þrennu og er einn heitasti framherji heims um þessar mundir. Frábært að fylgjast með Andra þessa dagana.

Orri Steinn Óskarsson - 8
Vann vítið og skoraði áður en hann fór af velli í hálfleik, væntanlega verið að hvíla hann.

Varamenn

Hörður Björgvin Magnússon (9') - 7
Traustur í hjarta varnarinnar eftir að hann kom inn á og lagði upp mark.

Arnór Sigurðsson (29') - 6
Skilaði ágætis frammistöðu eftir innkomuna.

Brynjólfur Willumsson (46') - 7
Lífleg innkoma og átti stóran þátt í þriðja marki Íslands. 

Gylfi Þór Sigurðsson (72') - 6

Aron Einar Gunnarsson (72') - 6

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅