Fólk óttast að eitthvað sé yfirvofandi

Hjördís Guðlaugsdóttir segist sjálf ekki óttast að útgáfa viðbúnaðarbæklings almannavarna tengist yfirvofandi hættu en hefur orðið vör við að slíkar áhyggjur hjá öðrum. Samsett mynd: Ljósmynd/Aðsend/Colourbox

Útgáfa viðbúnaðarbæklings almannavarna virðist hafa vakið aukinn áhuga á neyðarviðbúnaði. Bæklingurinn hefur þó einnig vakið áhyggjur hjá sumum, að sögn Hjördísar Guðlaugsdóttur, sem er ein þeirra sem standa að Facebook-hópnum Prepparar á Íslandi.

„Maður hefur séð umræðu um að fólk sé hrætt um að þetta sé að koma frá almannavörnum af því að það hljóti að vera eitthvað yfirvofandi,“ segir hún í samtali við mbl.is.

Hjördís segir bæklinginn góðan og telur hann sérstaklega gagnlegan fyrir yngra fólk sem hafi ef til vill lítið hugsað um neyðarviðbúnað.

„Í rauninni hefði þessi bæklingur þurft að vera löngu kominn,“ segir hún og telur að útgáfa hans hefði þá síður ýtt undir áhyggjur fólks.

Sjálf segist Hjördís ekki óttast að bæklingurinn hafi verið gefinn út vegna yfirvofandi hættu, þótt ástandið í heiminum sé vissulega ekki gott.

Hjördís hefur lengi haft þann sið að eiga matarbirgðir og aðrar nauðsynjavörur heima fyrir. Hún segir ekki þurfa stórt forðabúr eða dýran búnað til að vera viðbúinn óvæntum aðstæðum.

Nokkrir bætast við á hverjum degi

Í Facebook-hópnum eru nú um 6.050 manns. Hjördís segist ekki hafa fylgst nákvæmlega með fjölguninni en hafi þó tekið eftir því að fleiri sæki nú um aðild en áður.

„Það eru alltaf að koma inn nokkrir á dag núna,“ segir hún.

Umræðan í hópnum hefur einnig breyst. Áður hafi hún aðallega snúist um heimaræktun og matarforða en nú leiti fólk í auknum mæli ráða um hvaða búnað sé gott að eiga og hvar hægt sé að kaupa hann.

Fólk spyrji meðal annars um prímusa, útvörp og hleðslubanka.

Aukinn áhugi virðist einnig skila sér í verslunum en að undanförnu hefur verið greint frá mikilli söluaukningu á neyðarútvörpum og dósamat.

Hjördís leggur áherslu á að fólk geti byrjað smátt þegar kemur að neyðarviðbúnaði. Ekki þurfi að ráðast í mikil útgjöld og ýmsar leiðir séu til að koma nauðsynlegum búnaði fyrir, jafnvel þótt geymslupláss sé takmarkað. Ljósmynd/Colourbox

Þarf ekki stórt forðabúr

Hjördís hefur lengi haft þann vana að eiga matarbirgðir heima fyrir og segir það að miklu leyti koma úr uppeldinu. Hún er fædd og uppalin í sveit þar sem ekki var farið í kaupstað á hverjum degi og rafmagnið gat farið af hvenær sem er.

Því þurfti að eiga mat í búri og passa að hafa kerti og eldspýtur aðgengilegar.

Hún segir þó enga þörf á að fylla geymsluna af mat eða eyða stórfé í búnað til að vera viðbúinn.

„Maður þarf ekkert að eiga stórt búr,“ segir hún og bendir á að jafnvel ein skúffa í eldhúsinnréttingunni með niðursuðuvörum geti komið að góðum notum.

Sjálf hafi hún lengi nýtt góð tilboð til að kaupa inn og safna matarbirgðum. Þannig geti sparnaður og neyðarviðbúnaður farið vel saman.

Hjördís rifjar einnig upp að í tengslum við Suðurlandsskjálftann hafi fjölskyldan útbúið tösku með helstu nauðsynjum, meðal annars bleyjum og aukafötum fyrir börnin.

Hún bendir á að jafnvel þeir sem hafi lítið geymslupláss geti komið sér upp slíkri tösku.

Skottið sem geymsla

„Það er hægt að setja þetta í skottið á bílnum,“ segir hún og bendir á að þar megi einnig geyma ýmsan annan búnað sem ekki sé pláss fyrir heima.

Hjördís telur ráðleggingar stjórnvalda um að heimili geti séð fyrir grunnþörfum sínum í þrjá daga almennt hæfilegar, meðal annars ef rafmagn fer af.

Hún hvetur fólk til að huga að eigin viðbúnaði en segir enga ástæðu til að fyllast kvíða eða ráðast í mikil útgjöld. Betra sé að byrja smátt og bæta smám saman í birgðirnar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅