Ólseigir Eistar gefa ekkert eftir
Eistland vann frábæran sigur á Lúxemborg, 1:0, í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í Lúxemborg í kvöld.
Maksim Paskotsi skoraði mark Eista en þeir eru í öðru sæti fjórða riðils C-deildarinnar með níu stig, tveimur stigum á eftir Íslandi.
Ísland mætir Lúxemborg á Laugardalsvelli í lokaumferðinni og Eistland fær Búlgaríu í heimsókn.
Íslenska liðið er með mun betri markatölu en það eistneska og mun því sennilega nægja Íslandi að tapa ekki fyrir Lúxemborg í lokaumferðinni til að Ísland vinni riðilinn.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗