Öll flugumferð stöðvuð í Bandaríkjunum

Öll flugumferð hefur verið stöðvuð tímabundið.

Öll flugumferð hefur verið stöðvuð tímabundið. AFP/Ed Jones

Bandaríska flugmálastjórnin (FAA) hefur stöðvað alla flugumferð í Bandaríkjunum vegna alvarlegra bilana í fjarskiptakerfum flugumferðarstjórnar. Reuters greinir frá.

Í tilkynningu frá stofnuninni segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna óvenjulegra aðstæðna og af öryggisástæðum.

Flugvélar sem þegar eru á lofti mega lenda með hefðbundnum hætti en engum flugvélum á jörðu niðri er heimilt að hefja flug á meðan fyrirmælin eru í gildi.

Skömmu áður en ákvörðunin var tilkynnt hafði flugmálastjórnin stöðvað flugtak í Chicago vegna fjarskiptaörðugleika hjá flugumferðarstjórn. Alþjóðaflug verður metið í hverju tilviki fyrir sig.

Þetta er í annað sinn frá hryðjuverkaárásunum 11. september 2001 sem flugmálastjórnin stöðvar allar flugtakshreyfingar í Bandaríkjunum. Fyrra skiptið var í janúar 2023 þegar allt innanlandsflug var stöðvað í tæpar tvær klukkustundir.

Fjarskiptakerfi bandarísku flugmálastjórnarinnar eru komin til ára sinna og hafa ítrekað verið til umræðu. Bandaríkjaþing samþykkti á síðasta ári að verja 12,5 milljörðum dala til endurbóta á kerfunum.

Í dag óskuðu flugmálastjórnin og Hvíta húsið eftir 30,1 milljarði dala til viðbótar frá þinginu til að bregðast við öðrum annmörkum í flugumferðarkerfinu.

Ekki liggur fyrir hvenær flugtakshömlunum verður aflétt.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅