Leggur upp úr því ófullkomna
Soffía Sæmundsdóttir í Grafíksalnum en sýningu hennar lýkur um helgina. Opið er laugardag og sunnudag kl. 14-17. Ljósmynd/Helga Katrínardóttir
Sýning Soffíu Sæmundsdóttur, Vetrarferð/hillingar, stendur nú yfir í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17, hafnarmegin, og lýkur um helgina. Þar sýnir hún á sér nýja hlið sem listamaður, hrárri verk sem m.a. eru unnin á tréplötur og pappír.
„Með því að vinna verkin úti í náttúrunni eða í tengslum við náttúruna finnst mér ég þurfa stærri áhöld, meiri lit, meira vatn eða olíu. Á einhvern hátt fer ég að láta náttúruna taka við og ég leyfi verkunum að vera hrárri og viðkvæmari. Ég hef unnið verk á tréplötur lengi, allt frá námi í MHÍ.
Stærsta verkið, „Vetrarbraut“, er 1,5x3 m að stærð og unnið á birkikrossviðarplötu þar sem ég sæki í áhrif frá náttúrunni í skala og vinnuaðferð. Ég helli bleki og akrýllitum, sáldra lita- og blýdufti yfir plötuna, spreyja vatni og mála með stórum penslum. Í grafíkverkum mínum leyfi ég oft tilviljun að ráða för. Hvað skilar sér af tréplötunni á pappírinn getur verið erfitt að stjórna en ég legg upp úr því handgerða og ófullkomna,“ segir Soffía.
Fangar veturinn og hið innra líf
Spurð um inntak sýningarinnar segir hún vetrarferð vera þekkt stef innan lista.
„Ég hef gengið með hugmyndina að sýningunni lengi og var með hana sem leiðarstef þegar ég var að vinna á grafíkverkstæði Edvards Munch í Ekely á síðasta ári, fallegum stað í útjaðri Óslóar. Mig langaði til að fanga veturinn en líka hið innra líf, sköpun og kyrrð sem fylgir þessum tíma.“
Þú vannst hluta verkanna á grafíkverkstæði Edvards Munch í Ekely. Hafði saga staðarins áhrif á vinnuna?
„Já, ég get alveg sagt það að það hafði áhrif á mig að vera á þessum stað sem hann byggði og þar sem hann vann að verkum sínum. Ég las allt sem ég komst yfir um staðinn, fór nokkrum sinnum á safnið sem er í miðborginni en þar eru ferli hans og þessu húsi gerð góð skil. Í sumum verkum hans er ákveðinn andi og litir sem ég tengi við, sérstaklega þar sem manneskja og landslag koma saman, en líka einfaldleikinn í tréristum hans sem ég hef alltaf verið hrifin af. Rithöfundurinn Karl Ove Knausgård hefur gefið út bók um verk Munchs og það hafði mikil áhrif á mig að lesa það hvernig hann sér verk hans en líka hvernig hann talar um arfleifð hans í norskri list en í bókinni ræðir hann einnig við nokkra listamenn um það hvernig þeir líta á hann. Hann hefur auðvitað verið plássfrekur og ekki allra. Þetta segir mér að það er alltaf eitthvað að uppgötva.“
Er eitthvað sem þú hefur þurft að aflæra til að komast nær því sem þú vilt gera í myndlist?
„Já, ég hef þurft að æfa mig í að vanda mig ekki of mikið. Þetta á líka við um að mála yfir mynd sem er tilbúin eða leggja pappír ofan á myndina sem er tilbúin. Ég reyni að vinna gegn því með því að vera með margar myndir í gangi í einu og vinna ekki of lengi í hverri mynd. Þetta getur líka átt við að brjóta eigin reglur sem maður er búinn að temja sér.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



