Sjóðheitur Andri Lucas með þrennu er Ísland gekk frá Búlgaríu
Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. nóvember 2026 21:42
Andri Lucas Guðjohnsen. Mynd: DV/KSJ
Íslenska karlalandsliðið lék sér að Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Það var aldrei spurning um sigur Íslands sem fékk víti eftir um stundarfjórðung þegar Orri Steinn Óskarsson fór niður í teignum. Andri Lucas Guðjohnsen, sem hefur verið sjóðheitur með Blackburn í ensku B-deildinni undanfarið, skoraði af öryggi úr spyrnunni.
Orri var sjálfur á ferðinni með mark skömmu síðar. Átti hann góðan sprett eftir frábæran bolta frá Herði Björgvini Magnýssini og afgreiddi vel í markið.
Staðan í hálfleik var 0-2 og snemma í þeim seinni kom þriðja markið. Þá sendi Brynjólfur Willumsson boltann fyrir markið og Emil Tsenov setti boltann í eigið net.
Þá var komið að Andra á ný. Hann skoraði annað mark sitt og fjórða mark Íslands á 68. mínútu og fullkomnaði þrennuna um tíu mínútum síðar.
Lokatölur 0-5. Ísland getur gulltryggt sigur í riðlinum með jafntefli gegn Lúxemborg á heimavelli á mánudag.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗