Íslenskur gervigreindarhakkari til góðs
Gervigreindarhakkari netöryggisfyrirtækisins Defend Iceland hefur fundið hundruð áður óþekktra veikleika í þúsundum tölvukerfa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Fyrirtækið setti gervigreindarhakkarann á markað fyrr á árinu. Hann líkir eftir aðferðum tölvuþrjóta og gerir árásir á kerfi viðskiptavina í þeim tilgangi að finna veikleika áður en óprúttnir aðilar geta nýtt sér þá.
„Hver veikleiki sem við finnum og lokum er hurð sem árásaraðilarnir komast ekki inn um,“ er í tilkynningunni haft eftir Guðmundi Karli Guðmundssyni, sérfræðingi í rannsóknum og þróun hjá Defend Iceland.
Ísland ekki of lítið fyrir netárásir
Í tilkynningunni segir að það sé útbreiddur misskilningur að Ísland sé of lítið til að verða skotmark netárása. Bent er á að tveir kælar hérlendis hafi nýverið orðið fyrir netárás af sama toga og árásir á kælibúnað víða í Evrópu.
Tölvuþrjótar náðu stjórn á hitastýringu kæla og frysta í matvöruverslunum og hækkuðu hitann í sumum þeirra í allt að 50 gráður. Árásin hérlendis uppgötvaðist nær samstundis og olli litlu sem engu tjóni.
Í tilkynningunni segir að kælarnir séu þó aðeins eitt dæmi. Stýribúnaður orku- og veitukerfa, aðgangsstýringar í byggingum og myndavélakerfi geti einnig verið berskjölduð fyrir netárásum.
„Því fleiri tæki sem tengjast netinu, því fleiri dyr standa opnar og gervigreindarerindrekar eru óþreytandi við að taka í húna á hverja einustu,“ segir í tilkynningunni.
Aukning víða um heiminn
Fyrirtækið bendir jafnframt á að norsk yfirvöld hafi í lok október hækkað viðbúnaðarstig vegna netógna í „hátt“. Segir í tilkynningunni að þetta sé í fyrsta sinn sem norsk yfirvöld birti slíkt mat opinberlega og að gervigreind sé meðal þeirra áhættuþátta sem sérstaklega séu nefndir.
Þá vísar fyrirtækið til upplýsinga frá japanska netöryggisfyrirtækinu Macnica um fjölgun tilkynntra gagnaleka. Samkvæmt þeim voru 101 slíkt mál tilkynnt í Japan í október síðastliðnum, samanborið við 83 allt árið 2025.
Ómannað og allan sólarhringinn
Defend Iceland segir að gervigreind sé í auknum mæli nýtt til netárása. Sjálfvirkir gervigreindarerindrekar geti leitað að veikleikum og gert árásir á þúsundir kerfa samtímis, allan sólarhringinn.
Slíkir erindrekar geti að sögn Defend Iceland skannað fjölda kerfa á skömmum tíma, fundið veikleika og lagað árásir að einstökum skotmörkum, allt án þess að nokkur maður sitji við stjórnvölinn.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
