Búlgaría - Ísland, staðan er 0:5

Ísland valtaði yfir Búlgaríu, 5:0, á útivelli í C-deild Þjóðadeildar UEFA í fótbolta í kvöld. Íslandi nægir sigur á heimavelli gegn Lúxemborg á mánudaginn kemur til að tryggja sér sigurinn í riðlinum og fara upp í B-deildina.

Andri Lucas Guðjohnsen stal senunni því hann skoraði þrennu í fyrsta skipti fyrir landsliðið.

Orri Steinn Óskarsson fagnar marki sínu.

Orri Steinn Óskarsson fagnar marki sínu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jafnræði var með liðunum allra fyrstu mínúturnar og lítið markvert sem gerðist þar til á 16. mínútu þegar íslenska liðið fékk víti.

Yoan Stoyanov tók þá Orra Stein Óskarsson niður innan teigs og víti dæmt. Andri Lucas Guðjohnsen fór á punktinn, setti boltann fast niður í vinstra hornið og markvörðurinn fór í vitlaust horn.

Aðeins fimm mínútum síðar tvöfaldaði Orri Steinn Óskarsson forskot íslenska liðsins er hann slapp einn í gegn eftir langan bolta fram frá Herði Björgvin Magnússyni og skoraði af öryggi.

Andri Lucas Guðjohnsen tekur vítaspyrnu.

Andri Lucas Guðjohnsen tekur vítaspyrnu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Logi Tómasson var nálægt því að gera þriðja markið á 34. mínútu en bakvörðurinn setti boltann í stöngina úr teignum eftir sendingu frá Mikael Agli Ellertssyni.

Búlgarar ógnuðu nær ekkert allan fyrri hálfleikinn og var staðan í leikhléi 2:0. Fyrri hálfleikurinn gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig fyrir íslenska liðið því Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason fóru báðir meiddir af velli.

Íslenska liðið bætti við þriðja markinu á 52. mínútu þegar varamaðurinn Brynjólfur Andersen Willumsson átti fyrirgjöf frá hægri og Emil Tsenov setti boltann í eigið mark af stuttu færi með afar klaufalegum hætti.

Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson tvöfaldaði forskot Íslands.

Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson tvöfaldaði forskot Íslands. Ljósmynd/Alex Nicodim

Næstu mínútur voru rólegar en íslenska liðið var ekki hætt því Andri Lucas gerði sitt annað mark og fjórða mark Íslands á 68. mínútu þegar Hákon Arnar Haraldsson átti fallega sendingu inn fyrir vörnina og Andri lyfti boltanum snyrtilega yfir markvörðinn og í netið.

Varamaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var nálægt því að skora fimmta markið á 73. mínútu, tveimur mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður, en Daniel Naumov varði vel frá honum í stöngina af stuttu færi í teignum.

Fimmta markið kom sex mínútum síðar þegar Andri Lucas fullkomnaði þrennuna er hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Brynjólfi frá vinstri.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅