Búlgaría - Ísland, staðan er 0:5
Ísland valtaði yfir Búlgaríu, 5:0, á útivelli í C-deild Þjóðadeildar UEFA í fótbolta í kvöld. Íslandi nægir sigur á heimavelli gegn Lúxemborg á mánudaginn kemur til að tryggja sér sigurinn í riðlinum og fara upp í B-deildina.
Andri Lucas Guðjohnsen stal senunni því hann skoraði þrennu í fyrsta skipti fyrir landsliðið.
Jafnræði var með liðunum allra fyrstu mínúturnar og lítið markvert sem gerðist þar til á 16. mínútu þegar íslenska liðið fékk víti.
Yoan Stoyanov tók þá Orra Stein Óskarsson niður innan teigs og víti dæmt. Andri Lucas Guðjohnsen fór á punktinn, setti boltann fast niður í vinstra hornið og markvörðurinn fór í vitlaust horn.
Aðeins fimm mínútum síðar tvöfaldaði Orri Steinn Óskarsson forskot íslenska liðsins er hann slapp einn í gegn eftir langan bolta fram frá Herði Björgvin Magnússyni og skoraði af öryggi.
Logi Tómasson var nálægt því að gera þriðja markið á 34. mínútu en bakvörðurinn setti boltann í stöngina úr teignum eftir sendingu frá Mikael Agli Ellertssyni.
Búlgarar ógnuðu nær ekkert allan fyrri hálfleikinn og var staðan í leikhléi 2:0. Fyrri hálfleikurinn gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig fyrir íslenska liðið því Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason fóru báðir meiddir af velli.
Íslenska liðið bætti við þriðja markinu á 52. mínútu þegar varamaðurinn Brynjólfur Andersen Willumsson átti fyrirgjöf frá hægri og Emil Tsenov setti boltann í eigið mark af stuttu færi með afar klaufalegum hætti.
Næstu mínútur voru rólegar en íslenska liðið var ekki hætt því Andri Lucas gerði sitt annað mark og fjórða mark Íslands á 68. mínútu þegar Hákon Arnar Haraldsson átti fallega sendingu inn fyrir vörnina og Andri lyfti boltanum snyrtilega yfir markvörðinn og í netið.
Varamaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var nálægt því að skora fimmta markið á 73. mínútu, tveimur mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður, en Daniel Naumov varði vel frá honum í stöngina af stuttu færi í teignum.
Fimmta markið kom sex mínútum síðar þegar Andri Lucas fullkomnaði þrennuna er hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Brynjólfi frá vinstri.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

