Viktor Gísli með flottan leik

Janus Daði og Viktor Gísli í búningi Barcelona.

Janus Daði og Viktor Gísli í búningi Barcelona. Ljósmynd/Victor Salgado/FC Barcelona

Barcelona vann stórsigur á Proin Sevilla, 37:28, í efstu deild spænska handboltans í Barcelona í kvöld. 

Börsungar eru að vanda í toppsæti deildarinnar með 18 stig, fullt hús stiga, eftir níu umferðir. 

Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik og varði 12 skot. Hann var þá með 34% markvörslu. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅