Viktor Gísli með flottan leik
Barcelona vann stórsigur á Proin Sevilla, 37:28, í efstu deild spænska handboltans í Barcelona í kvöld.
Börsungar eru að vanda í toppsæti deildarinnar með 18 stig, fullt hús stiga, eftir níu umferðir.
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik og varði 12 skot. Hann var þá með 34% markvörslu. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗