Fær hámarksrefsingu fyrir banvænu tæklinguna

Jesús Owono hefur verið úrskurðaður í tólf leikja bann.

Jesús Owono hefur verið úrskurðaður í tólf leikja bann. AFP/Gabriel Bouys

Spænska knattspyrnusambandið hefur úrskurðað markvörðinn Jesús Owono í 12 leikja bann vegna tæklingar hans á Jesús de Miguel í leik Tenerife og Andorra í spænsku B-deildinni. De Miguel lést í kjölfar atviksins.

Owono fékk beint rautt spjald fyrir tæklinguna. De Miguel lést daginn eftir leikinn.

Bannið er hámarksrefsing samkvæmt 102. grein agareglugerðar spænska knattspyrnusambandsins, sem fjallar um ofbeldisfulla framgöngu gegn andstæðingi. Spænsku miðlarnir Marca og COPE greina frá. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅