Snorri með áleitna spurningu um „lygilegt“ mál morðingja og meints barnaníðings - Er svarið að finna hér?
Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Albana úr landi og gera honum að sæta 12 ára endurkomubanni. Úrskurðurinn hefur vakið mikla athygli þar sem Albaninn myrti mann í heimalandi sínu árið 2004 og er grunaður um að hafa brotið gegn barni á Íslandi.
Þingmaður Miðflokksins, Snorri Másson, er sleginn yfir úrskurðinum og spyr á Facebook hvað þurfi til að koma svo hægt sé að vísa afbrotamönnum úr landi: „Hvað þarf maður eiginlega að gera af sér hérna til að vera vísað úr landi? Þetta er greinilega ekki nóg.“
Sjá einnig: Framdi morð og sakaður um kynferðisbrot gegn barni en fær að vera áfram á Íslandi
Lygileg niðurstaða
Snorri vekur athygli á því að téður Albani hafi dvalið í leyfisleysi á Íslandi, ekki farið að fyrirmælum lögreglu og svo brotið gegn endurkomubanni eftir að honum var vísað úr landi. Svo hafi hann ekið án ökuréttinda og sé nú sakborningur í máli sem varðar grun um kynferðisbrot gegn barni sem er yngra en 15 ára.
„Útlendingastofnun tók ákvörðun um að vísa honum enn á ný úr landi með tólf ára endurkomubanni. En nei – það taldi kærunefnd útlendingamála ótækt. Það þótti ekki sýnt að almannahagsmunir krefðust þess að honum yrði vísað úr landi! Þetta er auðvitað lygilegt.“
Einkum sé málið lygilegt í ljósi brottvísunarfrumvarps dómsmálaráðherra en Snorri telur það hafa verið markaðssett með villandi hætti. Eini tilgangur þess sé í raun að hleypa erlendum glæpamönnum fyrr úr fangelsi og létta þar með álagi af fangelsiskerfinu.
„Veita erlendum föngum sérstaka undanþágu sem Íslendingum býðst ekki og gefa mönnum með alvarleg brot á bakinu þar með afslátt af refsingu, svo að þeir geti síðan farið til síns heima.
Þessi tímabundnu lög hafa lítil áhrif á samfélagið sjálft og engin á þá menn sem fá samkvæmt gildandi lögum að dveljast hér þrátt fyrir feril eins og er lýst hér að ofan.“
Hvers vegna mátti ekki vísa Albananum úr landi?
Áður en lengra er komið er rétt að geta þess að kærunefnd útlendingamála tekur í úrskurði sínum fram að brot gegn barni geti talist uppfylla skilyrði brottvísunar sem byggir á því að útlendingur sé ógn við grundvallarhagsmuni samfélagsins. Hins vegar hafi sú rannsókn ekki verið tilgreind í umsögn lögreglu í málinu sem var útbúin í júní á síðasta ári. Engu að síður komst lögregla að þeirri niðurstöðu í mati sínu að samfélaginu stafaði ógn af Albananum byggt á því að hann hefði verið sakborningur í fjórum málum sem feli í sér sjö brot frá árinu 2018. Þessi brot, sem varða ólöglega vinnu, ólöglega dvöl, brot á endurkomubanni, umferðarlagabrot og að fara ekki að fyrirmælum lögreglu, sýndu ákveðið hegðunarmynstur en ekki að Albaninn væri ógn við íslenska samfélagið.
Þegar kærunefndin tók málið fyrir voru komnar upplýsingar frá lögreglu um meint kynferðisbrot en þegar nefndin kynnti sér málið nánar kom á daginn að það er enn á rannsóknarstigi. Engin ákæra hefur verið gefin út og enginn dómur fallið. Nefndin sagði um þetta:
„Við það mat er einkum litið til þess að fyrir liggja mjög takmörkuð gögn um skýrslutöku vegna þess máls sem er til meðferðar auk þess sem ekki hefur verið gefin út ákæra eða komin dómsúrlausn í málinu. Þá liggja ekki fyrir gögn frá lögreglu sem gefa til kynna að kærandi sé ógn við almannahagsmuni að öðru leyti.“
Gerði nefndin í úrskurðinum ítrekað athugasemdir við mat lögreglu sem þótti ábótavant og tók fram að svo hægt væri að taka afstöðu til þess hvort háttsemi Albanans á Íslandi gæti talist ógn við almannahagsmuni þyrfti að afla frekari og ítarlegri gagna.
Þar með byggði úrskurðurinn ekki á því að brot gegn barni dugi ekki til þess að útlendingi verði vísað úr landi. Hann byggir á því að þau gögn sem lágu fyrir í málinu dugðu ekki til, en sérstaklega er því varpað fram að með frekari gögnum gæti staðan verið önnur.
„Með hliðsjón af framangreindu er nauðsynlegt að afla frekari og ítarlegri gagna um mál kæranda áður en unnt er að taka afstöðu til þess hvort háttsemi hans hér á landi geti talist ógn við almannahagsmuni.“
Spænskum ríkisborgara brottvísað vegna glæpa
Spurningunni sem Snorri ber upp í upphafi færslu sinnar má þó kannski svara að hluta með öðrum úrskurði sem einnig var birtur í dag og féll þann 15. október, sama dag og úrskurðurinn í máli Albanans.
Þar féllst kærunefndin á brottvísun brotamanns sem er ríkisborgari á Spáni. Sá hefur hlotið tvo dóma á Íslandi, fjórar sektargerðir, verið sviptur ökurétti tímabundið og haft stöðu sakbornings í 33 málum sem fela í sér 65 brot í heildina.
Um brotin segir í úrskurði:
„Kærandi hafi ítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna og án tilskilinna réttinda. Kærandi eigi ýmis ofbeldisbrot, þar af heimilisbrot, kynferðisbrot og líkamsárás. Hann eigi einnig ítrekuð þjófnaðarbrot og fíkniefnalagabrot.“
Útlendingastofnun ákvað í mars á þessu ári að brottvísa manninum og ákvarða endurkomubann með vísan til allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Lögregla skilaði mati og taldi líklegt að maðurinn héldi brotaferli sínum áfram á Íslandi og ógnaði þannig grundvallarhagsmunum samfélagsins.
Einnig var horft til upplýsinga frá Skattinum og velferðarþjónustu sveitarfélaga. Maðurinn hafði á árum sínum á Íslandi að mestu verið á framfæri hins opinbera, þar með talið með atvinnuleysisbótum og fjárhagsaðstoð sveitarfélags. Maðurinn lenti í slysi árið 2022 og var í kjölfarið metinn til 5% varanlegrar örorku.
Kærunefndin taldi ljóst af gögnum máls að maðurinn hefði lítið aðlagast íslensku samfélagi og að atvinnuþátttaka hans væri lítil. Sagði nefndin um þetta:
„Verður talið að aðlögun kæranda að íslensku samfélagi með tilliti til atvinnu sé lítil. Þá er einnig litið til þess að réttur til frjálsrar farar og dvalar grundvallast á sjónarmiðum um efnahagslega virkni. Kærandi byggir á því að hafa þurft að reiða sig á aðstoð sveitarfélaga eftir að hafa lent í slysi í nóvember 2022. Af gögnum málsins er ljóst að kærandi naut fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga og fékk greiddar atvinnuleysisbætur í miklum mæli áður en hann varð fyrir umræddu slysi. Þá hefur lögregla haft ítrekuð afskipti af kæranda frá árinu 2020, líkt og þegar hefur verið rakið, og er brotahegðun kæranda til marks um lítinn ásetning til félags- og menningarlegrar aðlögunar að íslensku samfélagi.“
Með hliðsjón af tíðni ítrekaðra brota mannsins og lítilli aðlögun hans að íslensku samfélagi var talið rétt að fallast á sjö ára endurkomubann.
Munurinn á málunum
Munurinn á málunum tveimur felst einkum í því að í því seinna taldi nefndin fullnægjandi gögn liggja fyrir til að sýna fram á ógn. Albaninn hafði ekki hlotið dóm á Íslandi og þegar lögregla skilaði mati sínu sumarið 2025 var tekið fram að hann hefði ekki verið grunaður um „sérstaklega alvarlegt brot“. Meint kynferðisbrot var ekki tilgreint í matinu en óljóst er hvort að það hafi þá verið komið inn á borð lögreglunnar. Rannsókn á meintu broti er ekki lokið og kærunefndin taldi sig ekki hafa fengið fullnægjandi gögn um rannsóknina til að hægt væri að byggja brottvísun á málinu. Dómurinn sem Albaninn hlaut fyrir manndráp féll árið 2007 og afplánun lauk fyrir um áratug. Lögum samkvæmt má brottvísa útlendingi sem er án dvalarleyfis ef hann hefur á síðustu fimm árum afplánað refsingu erlendis eða verið dæmdur þar til refsingar. Þetta átti ekki við um Albanann.
Spánverjinn hafði hins vegar hlotið dóma hér á landi og verið sakborningur í tugum mála til viðbótar. Hann þótti hafa sýnt það í verki að hann ætlaði sér ekki að aðlagast íslensku samfélagi. Hann væri góðkunningi lögreglu og hefði lítið lagt til atvinnulífsins.
Munur málanna tveggja byggðist fyrst og fremst á því hvort Útlendingastofnun hefði fært fullnægjandi rök fyrir því að íslensku samfélagi stafi ógn af mönnunum og hvað það varðar nægir ekki að vísa til rannsóknar sem er enn á því stigi að ekki liggur fyrir hvort ákæra verði gefin út. Kærunefndin sagði í máli Albanans:
„Við beitingu ákvæðisins verður að gera ríkar kröfur og að fyrir liggi rökstutt mat lögreglu og gögn sem sýna fram á umrædda ógn en líkt og að framan hefur verið rakið er mati lögreglu ábótavant í máli kæranda“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗