Vilhjálmur: „Tel okkur ekki uppfylla þær kröfur“
Vilhjálmur Bretaprins í fullum herklæðum. Hann hefur kallað eftir úrbótum á stöðu kvenna í breska hernum. AFP/Aaron Chown
Vilhjálmur Bretaprins gagnrýnir framkomu í garð kvenna í breska hernum og segir óásættanlegt að þær upplifi sig ekki öruggar og metnar að verðleikum. Hann hefur undanfarið átt fundi með konum úr öllum greinum hersins til að kynna sér reynslu þeirra.
Prinsinn fjallar um málið í tímaritinu Country Life, þar sem hann er gestaritstjóri að þessu sinni. Hann segir þörf á breytingum á menningu innan hersins svo konur finni að þær tilheyri honum.
„Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að herinn verði sá opni og faglegi vinnustaður sem tók vel á móti mér og að allir upplifi hann þannig,“ segir Vilhjálmur og bætir við:
„Ég tel okkur ekki uppfylla þær kröfur eins og staðan er núna. Sem fyrrverandi liðsforingja svíður mér að fólk sem nú klæðist einkennisbúningnum finni ekki fyrir öryggi, virðingu eða því að það sé metið að verðleikum.“
Feðgarnir Karl III. Bretakonungur og Vilhjálmur Bretaprins í viðhafnarbúningum í Windsor-kastala árið 2022. AFP/Peter Nicholls
Hafa lýst áreitni og óviðeigandi framkomu
Á síðasta ári hefur Vilhjálmur rætt við konur í ólíkum stöðum innan landhersins, sjóhersins og flughersins, bæði á opinberum fundum og einkafundum. Þær eru sagðar hafa lýst óviðeigandi athugasemdum og orðrómi sem dreift sé um konur sem hafni áleitni og áreitni af hálfu ölvaðra samstarfsmanna að næturlagi.
Prinsinn hefur í kjölfarið fundað með æðstu yfirmönnum hersins um úrbætur.
Í skýrslu sem kom út í fyrra kom fram að 67 prósent kvenna í hernum hefðu orðið fyrir einhvers konar kynferðislegri áreitni á undangengnu ári, samanborið við 34 prósent karla.
Í umfjöllun Country Life er meðal annars fjallað um Jaysley Beck, sem var nítján ára þegar hún svipti sig lífi, fimm mánuðum eftir að hafa tilkynnt um kynferðisbrot af hálfu yfirmanns. Við rannsókn á andláti hennar var komist að þeirri niðurstöðu að meðferð kvörtunarinnar hefði átt þátt í dauða hennar.
Vilhjálmur gegndi sjálfur herþjónustu í sjö og hálft ár, þar af í þrjú og hálft ár sem leitar- og björgunarflugmaður hjá breska flughernum.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
