Öryggisgalli ógnar íslenskum fyrirtækjum

Umfang mögulegra áhrifa veikleikans er mikið.

Umfang mögulegra áhrifa veikleikans er mikið. Ljósmynd/Colourbox

Grafalvarlegur veikleiki í gagnagrunnshugbúnaði Microsoft gæti haft víðtæk áhrif, meðal annars á Íslandi. 

Þetta bendir upplýsingatæknifyrirtækið APRÓ á. Í tilkynningu APRÓ segir að árás á berskjölduð tölvukerfi á Íslandi gæti raskað rekstri og þjónustu og stofnað trúnaðarupplýsingum í hættu.

Microsoft hefur gefið út öryggisuppfærslur vegna veikleikans sem fær 9,8 af 10 í alvarleikaeinkunn.

Veikleikinn tengist ekki þeirri víðtæku bilun sem varð hjá Microsoft í dag.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/11/12/truflun_a_kerfi_microsoft_outlook/6+

Umfang mögulegra áhrifa er mikið

Um er að ræða svokallaða minnisflæðisvillu í Microsoft SQL Server, gagnagrunnshugbúnaði sem fyrirtæki og stofnanir nota til að geyma og vinna með upplýsingar. Þröstur Jónasson, sérfræðingur hjá APRÓ, segir í samtali við mbl.is að umfang mögulegra áhrifa sé mikið. 

Hann segir gagnagrunnshugbúnaðinn vera eina af þremur helstu gagnagrunnsvélunum í notkun. Hugbúnaðurinn sé notaður við allt frá geymslu lítilla gagnasafna á einkatölvum til reksturs stórra gagnagrunna sem þjóna viðskiptakerfum fyrirtækja.

Samkvæmt upplýsingum frá Microsoft gæti árásaraðili nýtt sér veikleikann til að keyra skaðlegan kóða á gagnagrunnsþjóni án þess að þurfa að auðkenna sig. Með því gæti hann meðal annars komist yfir viðkvæmar upplýsingar.

Afleiðingarnar ráðast af réttindum þjónustunnar og til greina koma gagnastuldur, breytingar eða eyðing gagna og mögulega frekari árásir innan tölvukerfa fyrirtækjanna. 

Þröstur „Spörri“ Jónasson, sérfræðingur hjá APRÓ. Ljósmynd/APRÓ

Setja inn uppfærslur sem fyrst

Þröstur segir að mörg af mest notuðu bókhaldskerfum landsins styðjist við hugbúnaðinn og fram kemur í tilkynningu APRÓ að rekstraraðilar ættu að yfirfara kerfin sín og setja inn viðeigandi uppfærslur sem fyrst. 

„Boltinn er hjá þeim sem eru að þjónusta eða reka þessa grunna að setja inn viðeigandi öryggisuppfærslur. Það er mjög mikilvægt að fresta þeim ekki,“ segir Þröstur og bætir við að algengt sé að fyrirtæki veigri sér við því að uppfæra slík tölvukerfi þegar jólin nálgast og salan eykst.

„Menn fresta því að setja inn uppfærslur og búa til áhættu á því að lenda í einhverju verra en því að þurfa að taka niður til dæmis vefverslun í þennan hálftíma sem uppfærslan tekur,“ segir hann og bendir á að hugsanlegt tekjutap vegna stuttrar uppfærslu geti verið smávægilegt í samanburði við það tjón sem algjört gagnatap gæti valdið.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅