Gátu ekki nýtt forkaupsrétt í nafni dánarbús

Hæstiréttur staðfesti sýknuna vegna þess að enginn hefði verið bær til að skuldbinda dánarbúið með yfirlýsingunum. mbl.is/Eggert

Hæstiréttur hefur hafnað kröfu fimm erfingja um viðurkenningu á forkaupsrétti að 90,72% hlutafjár í Nesvöllum íbúðum ehf.

Yfirlýsingar um nýtingu réttarins voru gefnar í nafni dánarbús sem lokið hafði verið skiptum á átta árum áður. Enginn var því bær til að stofna til nýrra skuldbindinga fyrir hönd búsins.

Með dóminum, sem féll 11. nóvember, var niðurstaða Landsréttar um sýknu stefndu staðfest. Hæstiréttur ákvað þó að málskostnaður skyldi falla niður á öllum dómstigum.

Hlutafé skráð á bú sem lokið var skiptum á

Nesvellir íbúðir eiga rætur að rekja til byggingar húsnæðis með búseturéttarfyrirkomulagi fyrir fólk 55 ára og eldra í Reykjanesbæ á árunum 2005 til 2007. Eftir fjárhagserfiðleika félagsins var kröfum 29 búseturéttarhafa vegna greiddra búseturéttargjalda breytt í hlutafé í árslok 2015.

Maðurinn sem erfingjarnir leiða rétt sinn frá var meðal búseturéttarhafanna en hann lést árið 2013. Einkaskiptum á dánarbúi hans lauk endanlega í apríl 2014 án þess að búseturétturinn hefði komið til skipta. Þegar kröfunum var síðar breytt í hlutafé var dánarbúið skráð fyrir 2,444% hlut í félaginu.

Samkvæmt samþykktum Nesvalla íbúða átti félagið sjálft forkaupsrétt að fölum hlutum. Að því frágengnu nutu hluthafar sama réttar í hlutfalli við hlutafjáreign sína.

Forkaupsrétturinn felldur úr samþykktum

Vorið 2022 fóru fram viðræður um kaup P190 ehf. á hlutafé í Nesvöllum íbúðum. Hinn 30. apríl var hluthöfum tilkynnt að tilboð félagsins hefði verið samþykkt, þar sem samþykki eigenda 90% hlutafjár lægi fyrir.

Lögmaður tilkynnti stjórn Nesvalla íbúða 9. maí að dánarbúið hygðist nýta forkaupsrétt sinn. Yfirlýsingin var áréttuð á aðalfundi sama dag og fyrirhuguðu afnámi forkaupsréttar mótmælt. Fundurinn samþykkti engu að síður að fella réttinn úr samþykktum félagsins.

Tilkynningar um nýtingu forkaupsréttar voru einnig sendar einstökum hluthöfum í nafni búsins 13. maí.

Skipti dánarbúsins voru ekki endurupptekin fyrr en 7. júní. Þá var hlutafé þess fært á nöfn erfingjanna fimm í jöfnum hlutföllum. Síðar í sama mánuði var gengið frá sölu 90,72% hlutafjár í Nesvöllum íbúðum til P190.

Þurftu fyrst leyfi til endurupptöku skipta

Erfingjarnir töldu sig hafa haft heimild til að ráðstafa eignum búsins sem ekki hefðu komið til skipta. Hæstiréttur féllst ekki á það.

Rétturinn taldi að dánarbúið hefði hætt að vera sérstakur lögaðili þegar einkaskiptum lauk árið 2014. Þá hefði jafnframt lokið forræði erfingjanna á hagsmunum þess og umboði annarra til að koma fram fyrir hönd þess.

Erfingjarnir hefðu aðeins getað fengið slíkt forræði að nýju með leyfi sýslumanns til endurupptöku einkaskipta. Það leyfi lá ekki fyrir þegar yfirlýsingarnar um nýtingu forkaupsréttar voru gefnar. Þegar skiptin voru endurupptekin hafði forkaupsrétturinn þegar verið felldur úr samþykktum félagsins.

Sýkna á ólíkum forsendum

Héraðsdómur hafði sýknað stefndu á þeirri forsendu að ekki hefði verið kominn á bindandi kaupsamningur sem virkjaði forkaupsréttinn. Landsréttur staðfesti sýknuna en byggði niðurstöðu sína á aðildarskorti erfingjanna til sóknar.

Hæstiréttur staðfesti sýknuna vegna þess að enginn hefði verið bær til að skuldbinda dánarbúið með yfirlýsingunum. Rétturinn þurfti því ekki að leysa úr því hvort samkomulagið frá vorinu 2022 hefði að öðru leyti virkjað forkaupsrétt.

Við ákvörðun um niðurfellingu málskostnaðar horfði Hæstiréttur til þess að af hálfu Nesvalla íbúða hefði ítrekað verið talið heimilt að eiga lögskipti við dánarbú þótt skiptum þeirra væri lokið. Þá hefði fyrirsvarsmaður félagsins ítrekað gefið til kynna að hluthafar nytu forkaupsréttar og gætu gengið inn í framkomið tilboð.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅