Útboð á hljóðkerfi fyrir Hörpu stöðvað
Fjársýsla ríkisins annaðist útboðið fyrir hönd Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Um var að ræða örútboð innan rammasamnings um sviðsbúnað og var fjórum aðilum boðin þátttaka, þar á meðal I.D. Electronic. mbl.is/Eyþór
Kærunefnd útboðsmála stöðvaði innkaupaferli vegna hljóðkerfis fyrir Hörpu um stundarsakir með ákvörðun sem tekin var 14. september og birt í dag.
Nefndin taldi verulegar líkur á að krafa um að hátalarakerfi, magnarar og kerfisvinnsla væru frá sama framleiðanda bryti gegn lögum um opinber innkaup.
Nefndin féllst þar með á stöðvunarkröfu I.D. Electronic ehf., sem kærði útboðsskilmálana. Að mati nefndarinnar hafði nauðsyn kröfunnar ekki verið rökstudd nægilega og svo virtist sem ná mætti tæknilegum markmiðum innkaupanna með vægari skilyrðum.
Ákvörðunin tekur eingöngu til tímabundinnar stöðvunar innkaupaferlisins. Í henni er ekki endanlega leyst úr öðrum kröfum aðila.
Þurfti að vera frá sama framleiðanda
Fjársýsla ríkisins annaðist útboðið fyrir hönd Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Um var að ræða örútboð innan rammasamnings um sviðsbúnað og var fjórum aðilum boðin þátttaka, þar á meðal I.D. Electronic.
Samkvæmt hinum umdeilda skilmála áttu hátalarakerfi, magnarar og kerfisvinnsla að vera hönnuð, þróuð og framleidd af sama framleiðanda sem eitt samþætt kerfi. Búnaður úr aðskildum vörulínum uppfyllti ekki kröfuna, jafnvel þótt vörumerkin tilheyrðu sömu fyrirtækjasamstæðu.
Fjársýslan og Harpa sögðu tilganginn meðal annars vera að tryggja heildstætt kerfi sem framleiðandi hefði prófað og staðfest. Þannig væri stuðlað að samræmdri merkjavinnslu, vernd hátalara, vöktun og skýrri ábyrgð framleiðanda á virkni kerfisins.
Taldi unnt að setja vægari skilyrði
Nefndin taldi þennan rökstuðning ekki nægjanlegan á þessu stigi málsins. Hún benti á að rammasamningurinn gerði þegar kröfur um að bjóðendur gætu sinnt ábyrgðar- og viðgerðarþjónustu og boðið sérstaka þjónustusamninga.
Ekki hefði verið útskýrt hvers vegna ábyrgð bjóðenda samkvæmt þeim ákvæðum, ásamt viðbótarkröfum örútboðsins, nægði ekki vegna innkaupanna. Á þessu stigi yrði almennt að ætla að bjóðendur hefðu tæknilega og faglega hæfni til að bera ábyrgð á virkni heildarkerfisins sem þeir byðu.
Þá virtist unnt að tryggja tæknilega eiginleika kerfisins með vægari hætti, svo sem með staðfestingu eða öðrum viðeigandi gögnum frá einum eða fleiri framleiðendum um að búnaðurinn virkaði sem ein heild.
Nefndin vísaði í þessu sambandi til þess að við opinber innkaup bæri að gæta meðalhófs og óheimilt væri að takmarka samkeppni með óeðlilegum hætti.
Féllst ekki á allar athugasemdir
I.D. Electronic mótmælti einnig öðrum skilmálum útboðsins. Þar á meðal var krafa um að framleiðandi sýndi fram á víðtæka notkun búnaðar síns í stórum alþjóðlegum tónleikaferðum og að hann væri viðurkenndur í tæknikröfum listamanna. Reynsla af föstum uppsetningum í tónlistar- og ráðstefnuhúsum nægði ekki ein og sér.
Félagið gerði jafnframt athugasemdir við kröfur um notkun Milan-samskiptastaðalsins við dreifingu hljóðmerkja innan kerfisins.
Nefndin naut ráðgjafar hljóðverkfræðings við meðferð málsins. Með hliðsjón af skýringum hans og gögnum málsins taldi hún á þessu stigi að þessar tvær kröfur væru málefnalegar, tengdust fyrirhuguðum samningi og samræmdust lögum um opinber innkaup.
Kæran tók einnig til gæðaviðmiðs um stefnuvirkni hátalara. Því var breytt eftir að kæran barst. Taldi nefndin á þessu stigi að félagið hefði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn um lögmæti viðmiðsins í upphaflegri mynd.
Stöðvunin byggðist því á kröfunni um að búnaðurinn væri frá sama framleiðanda. Nefndin taldi verulegar líkur á lögbroti sem gæti leitt til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna við innkaupin.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗