Hörður Björgvin í bann
Hörður Björgvin Magnússon verður ekki með Íslandi gegn Lúxemborg í lokaleik riðilsins í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta á Laugardalsvelli á mánudaginn.
Hörður fékk gult spjald rétt í þessu í leik Búlgaríu og Íslands og er því kominn í leikbann.
Hörður Björgvin fékk einnig gult spjald í fyrri leiknum gegn Búlgaríu og tekur því út leikbann gegn Lúxemborg.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗