Mikill skellur fyrir íslenska landsliðið

Kristall Máni Ingason með boltann áður en hann meiddist.

Kristall Máni Ingason með boltann áður en hann meiddist. Ljósmynd/Alex Nicodim

Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason fóru báðir meiddir af velli í fyrri hálfleik í leik Íslands og Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í Plovdiv í Búlgaríu í kvöld. 

Stefán Teitur fór af velli strax á níundu mínútu leiksins og kom Hörður Björgvin Magnússon inn á í hans stað. 

Kristall meiddist síðan þegar 25 mínútur voru liðnar og fór af velli á 29. mínútu. Arnór Sigurðsson kom inn á í hans stað. 

Hálftími er liðinn af leiknum og er Ísland með 2:0-forystu sem stendur. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅