Mikill skellur fyrir íslenska landsliðið
Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason fóru báðir meiddir af velli í fyrri hálfleik í leik Íslands og Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í Plovdiv í Búlgaríu í kvöld.
Stefán Teitur fór af velli strax á níundu mínútu leiksins og kom Hörður Björgvin Magnússon inn á í hans stað.
Kristall meiddist síðan þegar 25 mínútur voru liðnar og fór af velli á 29. mínútu. Arnór Sigurðsson kom inn á í hans stað.
Hálftími er liðinn af leiknum og er Ísland með 2:0-forystu sem stendur.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗