Orsök bilunar hjá Neyðarlínunni enn óljós
Enn er óvitað hvað olli bilun í símstöð fyrir neyðarnúmerið 112 um klukkan 15 í dag, en númerið var óvirkt í um klukkustund og var landsmönnum bent á að hringja í númerið 599-0112 eða hafa samband í gegnum netspjallið á 112.is eða í appi Neyðarlínunnar.
„Þetta var bilun í hugbúnaði í símstöðinni en það er allt í fullri virkni núna,“ segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, við mbl.is, en neyðarsímstöðin var að fullu orðin virk klukkan 16:15 og símtöl farin að berast 112 með eðlilegum hætti.
Mörg hundruð símhringingar á sólarhring
Spurður hvort margir hafi hringt í númerið 112 meðan á biluninni stóð, eða hvort hægt sé að sjá tölur yfir það, segir hann það ekki vitað, en það verði skoðað í framhaldinu.
„Vonandi hefur þetta ekki haft afgerandi áhrif,“ en aðspurður segir hann trúlega um 650 símtöl berast neyðarlínunni á sólarhring.
Sumir hringja mörgum sinnum á dag
„Það er nú ekki hægt að segja að þetta séu allt neyðarsímtöl, vegna þess að inni í þessu eru líka einhver sjálfvirk „feilsímtöl,“ og krakkar að fikta. Svo eigum við líka nokkra góðkunningja sem eiga það til að hringja tugi símtala á sólarhring út af ekki neinu, þannig þetta er ekki allt í ýtrustu neyð.“
„En það er yfirleitt nóg að gera hérna hjá okkur þannig að við verðum aðeins hissa ef það heyrist ekki í símanum okkar í smá stund.“
Hann segist þó heldur ekki vita hve margir hringdu í númerið 599-0112 á meðan 112 var óvirkt.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗