Rapparinn ræddi ferilinn í Fríkirkjunni
Rapparinn Tinie Tempah kom fram á Iceland Noir ásamt Sölva Blöndal og Ragnari Jónassyni. mbl.is/Eyþór
Breski rapparinn Tinie Tempah kom fram á bókmenntahátíðinni Iceland Noir í dag þar sem hann ræddi viðburðaríkan tónlistarferil sinn, mótlæti og þær breytingar sem orðið hafa á tónlistariðnaðinum á undanförnum árum.
Rapparinn hefur nýverið snúið aftur á tónleikasviðið eftir langt hlé en í síðasta mánuði gaf hann út plötuna The Night's Not Dead, sína fyrstu í níu ár.
Í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist hann hafa saknað þess að koma fram fyrir áhorfendur meira en hann gerði sér grein fyrir.
„Það hefur verið eins og draumur að komast út aftur og tengjast fólki á ný – líka að tengjast nýju fólki og nýjum áhorfendum.“
Tinie hefur á undanförnum árum meðal annars einbeitt sér að fjölskyldulífinu, viðskiptum og því að styðja unga tónlistarmenn. Hann segir samfélagsmiðla hafa gjörbreytt tónlistariðnaðinum en leggur jafnframt áherslu á mikilvægi tónleikahalds og persónulegra samskipta.
Þetta er í þriðja sinn sem rapparinn heimsækir Ísland en hann kom meðal annars fram á Keflavík Music Festival árið 2013. Að þessu sinni er heimsóknin stutt, aðeins einn sólarhringur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



