Sóaði sjö tímum í eldhúsinu
Hversu oft ætli maður gæti skroppið út í búð eftir Skittles á sjö klukkustundum? Samsett mynd/Instagram/Kirsten Winegeart
Samfélagsmiðlastjarnan Nara Smith hefur vakið mikla athygli fyrir myndskeið þar sem hún býr til allt frá morgunkorni til sælgætis frá grunni. Hún segir þó ekki allt fyrirhafnarinnar virði.
Í samtali við Joönnu Saltz, stjórnanda hlaðvarpsins SNACKS! hjá matarvefnum Delish, sagðist Smith hafa eytt sjö klukkustundum í að útbúa Skittles-mola. Afraksturinn var aðeins 16 molar sem börnin hennar voru rétt um tíu sekúndur að klára.
Smith, sem er 25 ára og fjögurra barna móðir, segir að þessir 16 molar hafi ekki verið vinnunnar virði. Það sama gilti um tilraun hennar til að búa til Takis-snakk frá grunni, sem hún segir hafa tekið allt of langan tíma.
Matreiðslubók hennar, Homemade, kom út 13. október. Þar deilir hún bæði uppskriftum sem hafa vakið athygli á netinu og uppskriftum að réttum sem minna hana á uppvöxtinn í Þýskalandi.
Myndir þú nenna að búa til Skittles frá grunni?
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗