„Þeir hata hvor annan virkilega þessa stundina“

Samband Usher og Chris Brown er sagt stirt og hafa deilur þeirra varpað skugga á sameiginlegt tónleikaferðalag. Samsett mynd

Söngvararnir Usher og Chris Brown eru sagðir eiga í miklum erjum þrátt fyrir að vera saman á tónleikaferðalagi.

Heimildarmaður fjölmiðla vestanhafs segir ósættið hafa leitt til þess að tónleikum þeirra í Los Angeles var aflýst.

Samkvæmt heimildarmanninum hefur lengi verið grunnt á því góða milli þeirra. Spennan hafi þó magnast þegar fyrstu tónleikar þeirra í Atlanta hófust tæpum tveimur og hálfum tíma á eftir áætlun.

Brown hafi viljað fresta upphafi tónleikanna vegna mikillar umferðar við leikvanginn svo aðdáendur hefðu svigrúm til að komast á staðinn. Usher hafi hins vegar kennt honum um töfina og í kjölfarið hafi komið til heiftarlegra orðaskipta baksviðs.

Sættir aðeins til málamynda

Starfslið söngvaranna er sagt hafa reynt að miðla málum. Þeir hafi síðan flutt nokkur lög saman og faðmast á sviðinu, en heimildarmaður People segir sættirnar aðeins hafa verið til málamynda. Baksviðs hafi þeir ekki talast við.

Ágreiningurinn snúist meðal annars um að báðir vilji ráða ferðinni þegar kemur að listrænum ákvörðunum. Þá hafi deilur um upphafstíma tónleika blossað upp á ný.

Tónleikum þeirra í Los Angeles 16. nóvember og Miami 6. desember hefur verið aflýst. Heimildarmaðurinn segir ósættið hafa ráðið úrslitum um aflýsinguna í Los Angeles og hafnar því að dræm miðasala hafi verið ástæðan.

Fjárhagslegir hagsmunir og skuldbindingar við aðdáendur séu það sem haldi samstarfinu gangandi. Söngvararnir þurfi þó að ræða málin til að leysa ágreininginn.

„Þeir hata hvor annan virkilega þessa stundina,“ segir heimildarmaðurinn.

Fulltrúar Usher og Brown höfðu ekki svarað fyrirspurnum People þegar umfjöllunin birtist.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅