Tókst ekki að sanna að íbúðin í miðbænum væri mygluð og þarf að greiða bætur

Kærunefnd húsamála hefur fallist, að hluta til, á kröfu fyrirtækis sem er eigandi íbúðar í miðborg Reykjavíkur um að fyrrum leigjandi íbúðarinnar greiði því bætur. Leigjandinn flutti úr íbúðinni og rifti leigusamningi einhliða á grundvelli þessi að íbúðin væri óíbúðarhæf og heilsuspillandi meðal annars vegna myglu. Nefndin segir þó að það sé ósannað að ástand íbúðarinnar hafi verið með þeim hætti.

Fyrirtækið og leigjandinn gerðu með sér ótímabundinn leigusamning í janúar 2022. 

Í kröfugerð fyrirtækisins segir að uppsagnarfrestur leigjandans hafi verið sex mánuðir. Í desember 2025 hafi leigjandinn sent riftunaryfirlýsingu þar sem fram hafi komið að ástæða riftunar væri að húsnæðið væri ónothæft. Í því væri raki og mygla og ofnakerfi bilað. Fyrirtækið sagði hins vegar að engin gögn hafi verið lögð fram þessu til staðfestingar og ekki hafi farið fram úttekt af hálfu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Í janúar 2026 hafi leigjandinn afhent lykla að íbúðinni.

Sagðist fyrirtækið hafa farið í viðhaldsframkvæmdir á íbúðinni í september 2024, þar sem m.a. hafi verið farið yfir glugga í kjölfar ábendinga frá leigjandanum. Frá þeim tíma hafi leigjandinn ekki minnst á vandamál tengd leka, raka eða myglu fyrr en í riftunaryfirlýsingu. Riftunin hafi verið ólögmæt og því bæri leigjandanum að greiða bætur sem næmu fjárhæð húsaleigu í þriggja mánaða uppsagnarfresti, 1. janúar til 1. mars 2026, alls 1.249.611 krónur eða 425.537 krónur á mánuði. Sagðist fyrirtækið hafa reynt að takmarka tjón sitt með því að auglýsa íbúðina til leigu að nýju í kjölfar riftunar en það ekki tekist er kæra hafi verið rituð í mars 2026.

Fyrirtækið gerði kröfu um greiðslu úr tryggingarábyrgð leigjandans en hann hafnaði kröfunni.

Víst í ólagi 

Í andsvörum leigjandans var fullyrt að ástandi íbúðarinnar hafi verið verulega ábótavant um langt skeið. Fyrirtækið hafi ítrekað verið upplýst um annmarka á íbúðinni og úrbætur ýmist dregist verulega eða ekki verið fullnægjandi. Riftun hafi verið byggð á húsaleigulögum, vegna langvarandi raka- og ólyktarvanda, gruns um myglu, ítrekuðum bilunum í húsnæðinu og þeim áhrifum sem ástand íbúðarinnar hafi haft á líðan og heilsu leigjandans og fjölskyldu.

Sagði leigjandinn enn fremur að í júlí 2023 hafi komið upp alvarlegur leki í kjallara eignarinnar þar sem sjóðheitt vatn hafi fyllt rýmið. Aðeins hafi verið framkvæmd bráðabirgðaviðgerð vegna þess og mikill óþefur verið allar götur síðan úr gati í veggnum. Eins hafi verið vond lykt úr geymslu á móti barnaherbergi sem fyrirtækið hafi ekki brugðist við. Strax í október 2022 hafi verið óskað eftir að vifta yrði sett í salerni í kjallara þar sem herbergið fylltist fljótt af raka er sturta væri notuð. Úrbótum hafi verið lofað en ekki staðið við það.

Þá hafi hitakerfi hússins ítrekað verið í ólagi. Miklar og sjáanlegar rakaskemmdir hafi verið á suðurhlið hússins, þar á meðal í herbergi dóttur leigjandans sem hafi verið veik og orkulítil, líkt og leigjandinn sem hafi því ekki talið forsvaranlegt að búa áfram í húsinu. Þegar leigjandinn hafi flutt úr húsnæðinu hafi komið í ljós svört útfelling í geymslu í kjallara og heimapróf gefið jákvæða vísbendingu um myglu. Vegna óþefs hafi leigjandinn þurft að farga verulegum hluta eigna sem geymdar voru í geymslunni. 

Til stuðnings kröfu sinni lagði leigjandinn fram ljósmyndir af skemmdum og samskipti aðila vegna kvartana þess fyrrnefnda en benti auk þess á að ekki hafi verið hægt að leigja íbúðina út tafarlaust að nýju vegna þess að ráðast hafi þurft í framkvæmdir á henni. Hafi leigjandinn séð iðnaðarmenn að vinnu í húsnæðinu nær allan janúarmánuð en eignin hafi ekki verið auglýst til leigu að nýju fyrr en 4. febrúar 2026.

Sönnun

Í niðurstöðu kærunefndar húsamála segir að leigjandinn hafi ekki aflað mats heilbrigðisyfirvalda á því að eignin væri heilsuspillandi og hafi ekki lagt fram önnur gögn en myndir því til stuðnings að húsnæðið hafi verið ónothæft. Þá megi skilja málatilbúnað leigjandans á þann máta að riftun byggi á því að fyrirtækið hafi ekki bætt úr annmörkum á íbúðinni. Leigjandinn hafi þó ekki sent beiðni um úrbætur á fyrirtækið auk þess sem ósannað þyki að eignin hafi verið haldin verulegum annmörkum. Sé því fallist á að riftun leigjandans á leigusamningnum hafi verið ólögmæt.

Þegar kemur að upphæðinni sem leigjandinn á að greiða fyrirtækinu segir nefndin að þrátt fyrir hina ólögmætu riftun hafi hvílt sú skylda á fyrirtækinu að takmarka tjón sitt með því að leigja íbúðina út hið fyrsta, eftir að leigjandinn afhenti lykla að húsnæðinu 5. janúar 2026. Miðað við eftirspurn eftir leiguíbúðum í miðbæ Reykjavíkur sem og því að fyrirtækið mótmælti ekki fullyrðingum leigjandans, um að það hefði í kjölfar afhendingar ráðist í framkvæmdir á eigninni og ekki auglýst hana til leigu fyrr en í febrúar, verði að miða við að fyrirtækinu hefði verið mögulegt að leigja íbúðina út að nýju frá og með 1. febrúar 2026. 

Nefndin fellst því á að fyrirtækið eigi rétt á leigubótum frá leigjandanum vegna janúar 2026, 425.537 krónur, sem verði greiddar út úr ábyrgðartryggingu leigjandans en eins og áður kom fram hafði fyrirtækið krafist að fá að halda eftir tryggingunni, 1.249.611 krónum, í heild sinni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅