Zidane fær á baukinn
Zinedine Zidane, landsliðsþjálfari Frakklands, fær töluverða gagnrýni í frönskum fjölmiðlum eftir 3-1 tap gegn Ítalíu í Þjóðadeildinni í gær. Þetta var fyrsta tap Frakka undir stjórn Zidane.
Frakkar komust yfir snemma leiks áður en Ítalir sneru taflinu við. L'Equipe gagnrýnir varnarleik og miðju Frakka, á meðan Foot Mercato segir varnarlínuna hafa hrunið og bendir sérstaklega á slaka frammistöðu Malo Gusto.
Daniel Riolo, sérfræðingur RMC Sport, er þá harðorður í garð Zidane og ákvarðana hans.
„Ákvarðanir Zidane í ákveðnum stöðum eru mjög vafasamar. Ég ætla kalla þetta algjört klúður því við eigum eftir að heyra marga tala um hversu góðar fyrstu 25 mínúturnar voru.“
Riolo segir að Frakkar hafi byrjað frábærlega en síðan misst öll tök á leiknum.
„Ég velti fyrir mér hvenær Olise hefði farið af velli. En nei, hann var enn inni á. Og Cherki? Hann var líka enn inni en maður sá hann hvergi.“
Þetta var fimmti leikur Zidane við stjórnvölinn og fyrsta tapið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗