„Þetta er auðvitað lygilegt“

Snorri Másson þingmaður Miðflokksins.

Snorri Másson þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Eyþór

„Hvað þarf maður eiginlega að gera af sér hérna til að vera vísað úr landi?“

Þessari spurningu varpar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, fram í færslu á Facebook, þar sem hann fjallar um ákvörðun úrskurðarnefndar kærunefndar útlendingamála um að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa albönskum manni brott og setja hann í 12 ára endurkomubann til Íslands.

Manndráp og sakborningur vegna gruns um kynferðisbrot

Maðurinn var dæmdur fyrir manndráp í Albaníu og jafnframt sakborningur í máli vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni hér á landi. Nefndin taldi ekki hafa verið sýnt nægilega fram á að brottvísun hans væri nauðsynleg vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna.

„Umræddur maður skaut mann til bana í Albaníu í félagi við aðra og var dæmdur í átján ára fangelsi, síðar stytt í tólf. Eftir afplánun kom hann til Íslands, vann hér og dvaldi í leyfisleysi og hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu. Hann var settur í endurkomubann en kom samt aftur, var handtekinn og fluttur úr landi. Síðan sneri hann aftur, var stöðvaður við akstur án ökuréttinda og er nú sakborningur í máli hjá héraðssaksóknara vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni yngra en fimmtán ára,“ rekur Snorri í færslunni.

„Það taldi kærunefnd útlendingamála ótækt“

Eins og áður segir tók Útlendingastofnun ákvörðun um að vísa honum úr landi með tólf ára endurkomubanni.

„En nei, það taldi kærunefnd útlendingamála ótækt. Það þótti ekki sýnt að almannahagsmunir krefðust þess að honum yrði vísað úr landi!“

„Þetta er auðvitað lygilegt.“

En um leið sé þetta athyglisvert að mati Snorra, þá sérstaklega „í ljósi nýlegs brottvísunarfrumvarps sem dómsmálaráðherra hreykir sér af.“

Erlendir glæpamenn fá afslátt af refsingu

Hann segir það mál, þrátt fyrir villandi markaðssetningu ráðherra, felast í því einu að hleypa erlendum glæpamönnum fyrr úr fangelsi til að létta þar af álaginu, veita erlendum föngum sérstaka undanþágu sem Íslendingum býðst ekki og gefa mönnum með alvarleg brot á bakinu þar með afslátt af refsingu svo þeir geti farið til síns heima.

„Þessi tímabundnu lög hafa lítil áhrif á samfélagið sjálft og engin á þá menn sem fá samkvæmt gildandi lögum að dveljast hér þrátt fyrir feril eins og er lýst hér að ofan,“ segir Snorri og bætir við að nýju lögin kunni öllu heldur að laða hingað glæpamenn sem geri sér vonir um afslátt af fangelsisvist.

„Okkur vantar ekki fleiri frumvörp sem gera lífið þægilegra fyrir erlenda brotamenn. Okkur vantar alvöru breytingar sem tryggja hagsmuni íslensks samfélags.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅