Selfoss í miklu brasi
KA vann góðan 36:30-sigur á Selfossi þegar liðin mættust í tíundu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta á Selfossi í kvöld.
KA hefur farið vel af stað á tímabilinu og situr í þriðja sæti deildarinnar með 14 stig. Liðið er sex stigum á eftir toppliði Hauka og einu stigi á eftir FH í öðru sæti. Valur er í fjórða sæti með jafnmörg stig og KA.
Selfyssingar eiga hins vegar erfitt uppdráttar og sitja á botni deildarinnar með aðeins eitt stig. Þeir eru fjórum stigum á eftir Stjörnunni í 11. sæti og fimm stigum frá öruggu sæti.
KA hafði nauma forystu í hálfleik, 15:14, og var jafnræði með liðunum lengst af í síðari hálfleik. Selfoss minnkaði muninn í eitt mark, 31:30, þegar fjórar mínútur voru til leiksloka en KA svaraði með því að skora síðustu fimm mörk leiksins og tryggja sér sannfærandi sigur.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson var markahæstur hjá KA með átta mörk og Ragnar Hilmarsson skoraði sömuleiðis átta mörk fyrir Selfoss.
Mörk Selfoss: Ragnar Hilmarsson 8, Hannes Höskuldsson 5, Hákon Garri Gestsson 4, Tryggvi Sigurberg Traustason 4, Þorleifur Tryggvi Ólafsson 4, Sveinn Ísak Hauksson 2, Skarphéðinn Steinn Sveinsson 1, Alexander Hrafnkelsson 1, Valdimar Örn Ingvarsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 7 (16%).
Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 8, Dagur Gautason 5, Morten Linder 5, Einar Birgir Stefánsson 5, Andri Freyr Friðriksson 5, Arnór Ísak Haddsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 3, Dagur Árni Heimisson 2.
Varin skot: Bruno Bernat 11 (39%), Ágúst Elí Björgvinsson 7 (37%).
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗