Myrti þrjú börn með hrottalegum hætti – Síðustu orð hans vöktu athygli
Bandaríkjamaðurinn John Allen Rubio, sem var dæmdur til dauða fyrir að myrða þrjú ung börn og afhöfða þau í Texas árið 2003, var tekinn af lífi í gærkvöldi.
Rubio, sem var 46 ára, lét athyglisverð orð falla skömmu áður en honum var gefin banvæn lyfjasprauta.
„Ég verð hjá börnunum mínum eftir stutta stund,“ sagði Rubio í lokaorðum sínum, en hann hafði verið sakfelldur fyrir morðin á börnunum þremur, sem voru aðeins tveggja mánaða, 14 mánaða og þriggja ára gömul.
Aftakan fór fram í ríkisfangelsinu í Huntsville í Texas, að því er fram kemur í frétt AP.
Taldi börnin haldin illum öndum
Morðin voru framin í gluggalausri og afar illa hirtri íbúð í borginni Brownsville, skammt frá landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Málið vakti gríðarlegan óhug meðal bæjarbúa og var fjölbýlishúsið þar sem ódæðið var framið síðar rifið. Á lóðinni stendur nú almenningsgarður.
Börnin þrjú hétu Julissa Quesada, John E. Rubio og Mary Jane Rubio. Rubio var ekki líffræðilegur faðir eldri barnanna en hafði gengið þeim í föðurstað. Sambýliskona hans og móðir barnanna, Angela Camacho, var einnig sakfelld fyrir þátt sinn í morðunum og afplánar lífstíðarfangelsi.
Börnin þrjú.
Við réttarhöldin kom fram að Rubio hefði haldið því fram að börnin væru haldin illum öndum og að hann sjálfur væri „hinn útvaldi“ sem ætlað væri að bjarga heiminum.
Sérfræðingar verjenda töldu hann þjást af geðklofa með ofsóknarhugmyndum, en sérfræðingar ákæruvaldsins voru ósammála þeirri niðurstöðu.
„Ég er ekki sami maður og ég var“
Í lokaorðum sínum þakkaði Rubio fjölskyldu sinni og vinum fyrir ást og skilning. Hann sagðist hafa breyst í fangelsinu og fundið Guð.
„Ég er ekki sami maður og ég var,“ sagði hann og bað fjölskyldu sambýliskonu sinnar afsökunar.
„Ég get ekki breytt fortíðinni, en ég get sagt ykkur að lífi mínu er að ljúka. Það mun hins vegar ekki færa ykkur hamingju.“
Rubio var annar tveggja manna sem teknir voru af lífi í Bandaríkjunum í gær. Fyrr um daginn hafði James Pavatt, 73 ára, verið tekinn af lífi í Oklahoma fyrir morð á eiginmanni konu sem hann átti í ástarsambandi við.
Aftökurnar voru þær 36. og 37. í Bandaríkjunum á þessu ári og stefnir í að fleiri en 40 fangar verði teknir af lífi annað árið í röð.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗