Tvö stórlið á eftir Van Dijk

AC Milan og Juventus hafa áhuga á að fá Virgil van Dijk, fyrirliða Liverpool, til liðs við sig næsta sumar. BBC greinir frá þessu.

Samningur Van Dijk við Liverpool rennur út næsta sumar og getur Hollendingurinn því hafið viðræður við erlend félög í janúar. Tyrknesk félög eru einnig sögð fylgjast með stöðu hans.

Van Dijk er orðinn 35 ára og hefur sjálfur viðurkennt að óvissa ríki um framtíð hans hjá Liverpool. Hann hefur ekki útilokað að yfirgefa félagið þegar samningurinn rennur út.

Van Dijk hefur verið lykilmaður hjá Liverpool frá árinu 2018 en það hefur farið að hægjast á honum undanfarið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅