Réðst þrívegis á konu á hálfum sólarhring

Árásirnar áttu sér stað að kvöldi 17. nóvember 2023 og morguninn eftir. Í fyrstu árásinni, á heimili mannsins, henti hann konunni í gólfið, setti hnén á búk hennar, hélt höndum hennar niðri og hrækti í átt að andliti hennar. Ljósmynd/Colourbox

Landsréttur hefur staðfest þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir manni sem réðst þrívegis á konu sem hann átti í sambandi við á um hálfum sólarhring.

Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir barnaverndarlagabrot gagnvart dóttur konunnar. Hún varð vitni að tveimur árásanna og þurfti að skerast í leikinn til að stöðva ofbeldið.

Dómurinn féll í gær og staðfesti Landsréttur niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness frá 14. maí í fyrra, bæði um sakfellingu og refsingu. Maðurinn krafðist sýknu en ákæruvaldið fór fram á að refsing hans yrði þyngd.

Maðurinn þarf einnig að greiða tæplega 1,1 milljón króna í áfrýjunarkostnað, til viðbótar við tæplega 875 þúsund króna sakarkostnað í héraði.

Kom aftur eftir að mæðgurnar ráku hann út

Árásirnar áttu sér stað að kvöldi 17. nóvember 2023 og morguninn eftir. Í fyrstu árásinni, á heimili mannsins, henti hann konunni í gólfið, setti hnén á búk hennar, hélt höndum hennar niðri og hrækti í átt að andliti hennar.

Morguninn eftir réðst hann á konuna í svefnherbergi á heimili hennar. Hann henti henni meðal annars á vegg og fataskáp, togaði í fótlegg hennar svo hún féll aftur fyrir sig og setti hné á háls hennar þar sem hún lá í rúmi.

Dóttir konunnar vaknaði við læti og kom móður sinni til aðstoðar. Hún gekk á milli þeirra og tókst mæðgunum í sameiningu að koma manninum út af heimilinu.

Um klukkustund síðar sneri hann aftur. Þá greip hann um handleggi konunnar og kreisti þá, kreisti andlit hennar og hrækti í átt að því. Konan hlaut meðal annars mar á upphandlegg, kálfa og brjósti, auk verkja í báðum kálfum.

Áverkarnir samrýmdust frásögn konunnar

Maðurinn neitaði sök og kvaðst hafa tekið utan um konuna til að verja sig og ná stjórn á aðstæðum. Hann bar jafnframt við minnisleysi vegna ölvunar og gat ekki skýrt hvernig áverkar hennar hefðu komið til.

Landsréttur taldi framburð konunnar hafa verið stöðugan og trúverðugan frá upphafi. Hann fengi meðal annars stuðning í framburði dóttur hennar, læknisvottorði og ljósmyndum af áverkum. Áverkarnir samrýmdust jafnframt lýsingu hennar á atvikum.

Rétturinn taldi því sannað að maðurinn hefði ráðist á konuna með þeim hætti sem lýst var í ákæru. Þá hefði hann með árásunum á heimili hennar sýnt dótturinni ruddalegt athæfi og sært hana í skilningi barnaverndarlaga.

Refsingin áfram skilorðsbundin

Við ákvörðun refsingar leit héraðsdómur meðal annars til þess að maðurinn hefði ekki áður hlotið refsingu fyrir ofbeldisbrot. Á móti vó að hann hefði ráðist þrívegis á konuna á um hálfum sólarhring og dóttir hennar orðið vitni að tveimur árásanna.

Landsréttur staðfesti þriggja mánaða fangelsisrefsingu mannsins, sem er skilorðsbundin til tveggja ára, með vísan til forsendna héraðsdóms.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅