Albert snýr aftur

Albert Guðmundsson er heill á nýjan leik.

Albert Guðmundsson er heill á nýjan leik. Ljósmynd/Lazio

Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er mættur aftur til æfinga með liði sínu Lazio á Ítalíu. 

Albert hefur ekkert spilað síðan hann meiddist á öxl með íslenska landsliðinu í leiknum gegn því eistneska á Laugardalsvelli í lok septembermánaðar. 

Hann snéri aftur á móti aftur til æfinga í gær og gæti verið með Lazio í æfingaleik liðsins gegn Mgarr United frá Möltu á morgun. 

Samkvæmt staðarmiðlum verður Albert allavega klár í næsta leik toppliðs Lazio á móti Lecce í ítölsku A-deildinni. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅