Avril Lavigne deilir óvæntum tíðindum - Eignaðist barn með huldumanni

Tónlistarkonan Avril Lavigne er orðin móðir. Þessum gleðitíðindum deildi Lavigne á Instagram en hún hafði ekki greint frá því opinberlega að hún ætti von á barni. Eins hefur hún ekki deilt því hver barnsfaðir hennar og sambýlismaður er. Hann er því huldumaður sem stendur.

Lavigne, sem er 42 ára, deildi myndum þar sem hún og barnsfaðir hennar halda um hendur litlu stúlkunnar. Á annarri sést tónlistarkonan með barnið í fanginu. Einnig deildi hún mynd af hjólabretti þar sem mátti finna þrjú skópör. Öll eru þau eins nema í mismunandi stærðum, eitt par fyrir hvern fjölskyldumeðlim.

Vorið 2024 greindi Lavigne frá því í hlaðvarpi að hún væri á föstu en hún hefur ekki deilt nafni kærastans, en líklegt þykir að hann sé barnsfaðir hennar. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅