Hver tekur við af Huang?

Hver tekur við af Jensen Huang? AFP/Patrick T. Fallon

Nú þegar Jensen Huang hefur látið af störfum sem forstjóri tæknirisans Nvidia og Cloett Kress tekið tímabundið við sem starfandi forstjóri vakna upp spurningar um það hver muni taka við þessum tæknirisa.

Fyrirtækið er leiðandi í þróun búnaðar sem nýttur hefur verið í hraða uppbyggingu gervigreindar og gervigreindargagnavera á undanförnum árum. Samhliða því er það orðið spurning um þjóðaröryggi hvernig fyrirtækið starfar og hverjum það selur vörur sínar, en sala Nvidia til fyrirtækis hjákonu Huang, sem síðan áframseldi vörurnar til Kína, braut mögulega gegn banni bandarískra stjórnvalda.

Ekki hver sem er sem telst hæfur

Það gæti reynst nokkuð flókið að finna arftaka Huangs því hann hafði gríðarlega mikla og djúpa þekkingu á tæknilegum málefnum fyrirtækisins sem snerta gervigreind. Meðal annars á það við um þá grafísku örgjörva sem fyrirtækið þróar, en þeir hafa verið notaðir til að þjálfa og keyra gervigreindarlíkön.

Þá hafði Huang byggt upp gríðarlega víðfeðmt tengslanet innan geirans, allt frá viðskiptavinum og birgjum yfir til stjórnmálamanna, en þekktast var samband hans og Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna. Var það meðal annars byggt á því hversu mikilvæg þekking og framleiðsla Nvidia væri fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna, en

Huang hafði einnig skapað umhverfi innan Nvidia þannig að tekist hafði að halda í við gríðarlega hraða þróun gervigreindariðnaðarins og á sama tíma dregið að fyrirtækinu einhverja öflugustu verkfræðingana á þessu sviði.

Einn af styrkleikum Jensen Huang var gríðarlega öflugt tengslanet hans, meðal annars við núverandi forseta Bandaríkjanna. AFP/Kent Nishimura

Með 60 starfsmenn sem heyrðu beint undir sig

New York Times greinir frá því að fáir kandídatar séu líklegir til að geta viðhaldið þeim flata stjórnunarstíl sem Huang hafði byggt upp en talið er að 60 starfsmenn hafi heyrt beint undir hann. Þá var Huang vel inni í fjölda mála og kom beint að ákvarðanatöku mjög víða í fyrirtækinu. Segir í frétt New York Times að þegar fjöldi þeirra sem heyri undir stjórnendur verði meiri en 12 skapi það oft vandamál. Brotthvarf hans gæti því kallað á miklar skipulagsbreytingar.

Sjö líklegir arftakar

Telur bandaríska blaðið jafnframt upp sjö kandídata sem nefndir hafa verið sem mögulegir arftakar Huangs.

Fyrst nefnir blaðið Colett Kress, 59 ára, sem er fjármálastjóri Nvidia og frá því í gær einnig starfandi forstjóri. Hún þekkir vel til fyrirtækisins en skortir tæknilega þekkingu í tengslum við gervigreind.

Colette Kress, fjármálastjóri og starfandi forstjóri er ein þeirra sem þykir líkleg að setjast í forstjórastólinn. AFP

Næstur er Ian Buck sem er framkvæmdastjóri á sviði stórskala- og afkastamikillar tölvuvinnslu (e. hyperscale and high performance computing) hjá Nvidia. Hefur hann meðal annars verið talinn lykilmaður í umbyltingu fyrirtækisins frá því að þróa grafíska örgjörva fyrir skjákort yfir í að nýta þessa tækni til að vera leiðandi í gervigreindarkapphlaupinu. Stjórnendareynsla hans mætti vera meiri, en hann hefur engu að síður meðal annars komið fyrir þingnefndir og komið upp tengslaneti í höfuðborginni Washington.

Fyrrverandi forstjóri Apple, Tim Cook, er sá næsti sem nefndur er. Hann lét nýlega af störfum hjá Apple eftir að hafa byggt fyrirtækið upp í að verða verðmætasta fyrirtæki heims. Helsti galli Cooks er að hann hefur ekki verið jafn innvinklaður í þróun gervigreindar og margir aðrir á þessum lista. Þá er hann 66 ára og eldri en flestir sem koma til greina. Talið er líklegra að hann yrði tímabundinn forstjóri til lengri tíma, frekar en að taka við beint sem forstjóri.

Tim Cook er einn þeirra sem nefndur hefur verið sem hugsanlegur arftaki Huangs. AFP/Romeo Boetzle

Fjórði á listanum er Johny Srouji, framkvæmdastjóri vélbúnaðar hjá Apple. Hann hefur mikla reynslu af örgjörvum og komið að innleiðingu gervigreindar í vörur Apple. Sú innleiðing hefur þó mest miðað að snjallsímum, snjallúrum og tölvum sem Apple selur frekar en í gagnaverum, en þar eru stærstu skrefin í þróun gervigreindar stigin. Þá hefur hann lítið verið í sviðsljósinu utan Apple viðburða.

Rene Haas er 64 ára forstjóri tæknifyrirtækisins Arm Holdings, en fyrirtækið hannar og þróar örgjörva og selur þá hönnun áfram til annarra tæknifyrirtækja. Þá starfaði hann hjá Nvidia frá 2006 til 2013. Árið 2020 áformaði Nvidia einnig að kaupa Arm, en samningurinn datt niður árið 2022 vegna andstöðu stjórnvalda. Á þeim tíma var hann því mikið í samskiptum við stjórnendur Nvidia.

Forrest Norrod er framkvæmdastjóri Advanced Micro Devices (AMD), sem er samkeppnisaðili Nvidia. Er fyrirtækið næststærsta fyrirtækið á þessum markaði og nýtur hann talsverðrar virðingar innan geirans. Hefur hann meðal annars séð um sölu örgjörva fyrirtækisins til gervigreindargagnavera.

Charlie Kawwas er síðastur á listanum, en hann er forstjóri tæknifyrirtækisins Broadcom. Fyrirtækið hannar örgjörva og hefur meðal annars aðstoðað Google við þróun þeirra eigin örgjörva til viðbótar við að Google kaupi kubba frá Nvidia.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅