Tinder sektað um 1,5 milljarða
DPC komst að því að sjálfsafgreiðslutól Tinder, „Download My Data“, hefði sleppt ákveðnum flokkum gagna án þess að láta notandann vita eða aðeins veitt samantekt. AFP/Aamir Qureshi
Evrópusambandið hefur sektað eiganda stefnumótaforritsins Tinder um 11 milljónir evra, eða sem nemur um 1,5 milljörðum króna, fyrir að veita notendum ekki viðunandi aðgang að persónuupplýsingum sínum.
Írska persónuverndarstofnunin (DPC) lagði sektina á Match Group, fyrirtækið að baki Tinder, Hinge og öðrum stefnumótaforritum, eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að gagnaniðurhalstól Tinder uppfyllti ekki persónuverndarreglur ESB.
DPC, sem hóf rannsókn sína árið 2020, gaf Match Group þrjá mánuði „til að færa vinnslu sína til samræmis“ við almennu persónuverndarreglugerð sambandsins (GDPR).
Match Group hyggst áfrýja
Mörg bandarísk tæknifyrirtæki skrá evrópsk dótturfélög sín á Írlandi og því fellur það í hlut eftirlitsstofnunar landsins að framfylgja GDPR.
DPC komst að því að sjálfsafgreiðslutól Tinder, „Download My Data“, hefði sleppt ákveðnum flokkum gagna án þess að láta notandann vita eða aðeins veitt samantekt.
„Þótt þetta tól hafi verið kynnt notendum sem leið til að fá afrit af Tinder-gögnum sínum komst DPC að því að það veitti notendum ekki allar persónuupplýsingar þeirra,“ segir í yfirlýsingu DPC.
Graham Doyle, aðstoðarforstjóri DPC, sagði að slík tól „þurfi ekki að veita fullkomið afrit af persónuupplýsingum en þau verði að vera sanngjörn og gagnsæ gagnvart einstaklingum varðandi umfang þeirra gagna sem veitt eru“.
Match Group hyggst áfrýja ákvörðuninni.
„Tinder átti í samskiptum við DPC alla rannsóknina og við stöndum að baki þeirri persónuvernd sem við höfum byggt upp fyrir notendur okkar,“ sagði talsmaður Match Group.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗