Arnar setur Gylfa á bekkinn
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson, Hákon Arnar Haraldsson og Kristall Máni Ingason eru í byrjunarliðinu. Ljósmynd/Alex Nicodim
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gerir þrjár breytingar á liði sínu frá markalausa jafnteflinu gegn Eistlandi í síðasta glugga í C-deild Þjóðadeildar karla í fótbolta.
Ísland mætir Búlgaríu ytra í kvöld en Kristall Máni Ingason, Mikael Egill Ellertsson og Logi Tómasson koma inn fyrir Mikael Neville Anderson, Gylfa Þór Sigurðsson og Hörð Björgvin Magnússon.
Þetta er fyrsti byrjunarliðsleikur Kristals í keppnisleik.
Lið Íslands: (4-4-2)
Mark: Hákon Rafn Valdimarsson
Vörn: Guðlaugur Victor Pálsson, Stefán Teitur Þórðarson, Daníel Leó Grétarsson, Logi Tómasson
Miðja: Mikael Egill Ellertsson, Ísak Bergmann Jóhannesson, Hákon Arnar Haraldsson, Kristall Máni Ingason
Sókn: Andri Lucas Guðjohnsen, Orri Steinn Óskarsson
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗