Varð fyrir bíl og rotaðist á rafhlaupahjóli – VÍS gerði athugasemd við breytingu á hjólinu

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að tryggingafélagið VÍS beri óskerta bótaskyldu vegna slyss þar sem ekið var á mann á rafhlaupahjóli í Reykjavík.

Málið vakti sérstaka athygli vegna þess að búið var að breyta hjólinu þannig að það gat náð allt að 47,2 kílómetra hraða á klukkustund.

Slysið varð í júní 2022 þegar maðurinn var á leið til vinnu á rafhlaupahjóli. Bifreið var ekið á hann þar sem hann fór yfir gönguþverun við Hringbraut. Maðurinn missti meðvitund og hlaut nokkra áverka.

VÍS hafnaði bótaskyldu og hélt því meðal annars fram að vegna breytinganna á hjólinu hefði það átt að vera skráð og tryggt sem vélknúið ökutæki. Félagið taldi jafnframt að maðurinn hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi.

Landsréttur féllst ekki á þessi sjónarmið. Þótt búið hefði verið að breyta hjólinu var það upphaflega hannað fyrir allt að 25 kílómetra hraða og taldist því ekki skráningar- eða tryggingarskylt samkvæmt þeim lögum sem giltu þegar slysið varð.

Þá þótti ósannað að maðurinn hefði ekið hraðar en aðstæður leyfðu eða sýnt af sér stórkostlegt gáleysi. Var niðurstaða héraðsdóms um bótaskyldu VÍS því staðfest.

Rétt er að taka fram að lögum var breytt árið 2024 og er nú bannað að nota rafhlaupahjól og önnur smáfarartæki sem hefur verið breytt þannig að þau geti farið hraðar en 25 kílómetra á klukkustund fyrir vélarafli.

Sú breyting hafði hins vegar ekki áhrif á niðurstöðu málsins þar sem slysið varð áður en lögin tóku gildi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅