Bogi skýtur föstum skotum - „Skemmtir sér og öðrum“
433
Föstudaginn 13. nóvember 2026 18:30
Bogi Ágústsson. Mynd: Skjáskot RÚV.
Fjölmiðlamaðurinn ástsæli Bogi Ágústsson vakti athygli á gríni sem gert er að Manchester United í enskum fjölmiðlum á samfélagsmiðlum í gær.
Það var greint frá því í gær að United væri búið að reka Michael Carrick eftir afleitt gengi á leiktíðinni og að Mauricio Pochettino væri að taka við.
Hverjum stjóranum á fætur öðrum hefur mistekist að ná árangri hjá United í meira en áratug, eða frá því Sir Alex Ferguson kvaddi sviðið.
Bogi vakti athygli á teikningu í blaðinu Telegraph á Facebook-síðunni Algjörlega óáhugaverðar fótboltaupplýsingar.
„Það eru 1,7 milljónir manna að sækja um atvinnuleysisbætur. 500 þúsund þeirra eru stjórar Manchester United sem hafa verið reknir,“ segir á teikningunni.
„Snilldarteiknarinn Matt skemmtir sér og öðrum á kostnað ManU,“ skrifaði Bogi.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗