Áhugavert byrjunarlið Íslands - Þrjár breytingar og enginn Gylfi Þór

Helgi Fannar Sigurðsson

Föstudaginn 13. nóvember 2026 18:37

Kristall Máni Ingason. Mynd: DV/KSJ

Íslenska karlalandsliðið mætir því búlgarska í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Leikið er ytra.

Ísland er á toppi riðilsins með 8 stig eftir sigra gegn Búlgaríu og Lúxemborg í síðasta landsleikjaglugga og tvö jafntefli við Eistiland.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gerir þrjár breytingar frá síðasta leik gegn Eistlandi. Logi Tómasson, Kristall Máni Ingason og Mikael Egill Ellertsson koma inn fyrir Hörð Björgvin Magnússon, Gylfa Þór Sigurðsson og Mikael Neville Anderson.

Daníel Leó Grétarsson er í byrjunarliðinu, en hann hefur verið fjarverandi með félagsliði sínu, AGF, af persónulegum ástæðum undanfarið.

Byrjunarlið Íslands
Hákon Rafn Valdimarsson

Guðlaugur Victor Pálsson
Stefán Teitur Þórðarson
Daníel Leó Grétarsson
Logi Tómasson

Mikael Egill Ellertsson
Hákon Arnar Haraldsson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Kristall Máni Ingason

Andri Lucas Guðjohnsen
Orri Steinn Óskarsson

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅