Þjófnaður í verslunum í tveimur lögregluumdæmum

Eins og stendur dvelur einn í fangageymslu lögreglu.

Eins og stendur dvelur einn í fangageymslu lögreglu. mbl.is/Karítas

Einn var fluttur á bráðamóttöku eftir þriggja bíla umferðarslys í hverfi 105 og voru bílarnir talsvert skemmdir. Þá var ökumaður stöðvaður fyrir að aka í göngugötu.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17.

Þar kemur einnig fram að lögreglustöð 2 hafi borist tilkynning um þjófnað úr verslun en málið sætir nú rannsókn.

Tekinn á 121 km/klst hraða

Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í sama lögregluumdæmi. Sá sem ók hraðast mældist á 121 km/klst hraða þar sem hámarkshraði var 90 km/klst.

Lögreglan á lögreglustöð 2 sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.

Lögreglustöð 2 var ekki sú eina sem fékk tilkynningu um þjófnað úr verslun, en tilkynning sama efnis barst lögreglustöð 4 sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ.

Eins og stendur dvelur einn í fangageymslu lögreglu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅