Lofa ítarlegri rannsókn
Yfirvöld í New York lofa ítarlegri rannsókn á því hvers vegna íbúðarhús hrundi í Brooklyn á miðvikudag. Átta manns fórust og meira en tugur slasaðist þegar þriggja hæða byggingin féll inn á nálægan byggingarreit þar sem verið var að grafa fyrir grunni.
„Fjölskyldur í þessu hverfi eiga skilið að fá svör um hvað leiddi til hrunsins,“ sagði Leticia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, við fréttamenn í dag. Hún kvaðst treysta því að þeir sem bæru ábyrgð yrðu látnir svara til saka. Saksóknari í Brooklyn hefur hafið sakamálarannsókn.
Slökkvilið New York sagði síðdegis í gær að ekki væri búist við að fleiri fórnarlömb fyndust á vettvangi. Björgunarfólk hafði þá leitað í rústunum klukkustundum saman með aðstoð dróna og hunda. Tvö börn voru meðal þeirra átta sem létust.
Rannsóknin er skammt á veg komin, en athyglin beinist meðal annars að byggingarreitnum við hlið hússins. Þar var verið að undirbúa undirstöður fyrir níu hæða byggingu.
Julie Menin, forseti borgarstjórnar New York, sagði að hún vildi herða byggingarreglur borgarinnar eftir slysið. „Þetta er ólýsanlegur og hræðilegur harmleikur og við verðum að bregðast við,“ sagði hún.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗