Franskur Michelin-stjörnukokkur í heimsókn á TIDES
Franski matreiðslumaðurinn Nicolas Carro verður gestakokkur á TIDES á hótelinu The Reykjavík EDITION dagana 20. og 21. nóvember. Heimsóknin er hluti af frönsku matarhátíðinni Keimi, sem sendiráð Frakklands á Íslandi stendur fyrir. Samsett mynd/Aðsend
Franski matreiðslumaðurinn Nicolas Carro verður gestakokkur á TIDES á hótelinu The Reykjavík EDITION dagana 20. og 21. nóvember. Heimsóknin er hluti af frönsku matarhátíðinni Keimi, sem sendiráð Frakklands á Íslandi stendur fyrir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Franska sendiráðinu.
Í ár er hátíðin helguð Bretaníu (f. Bretagne) í norðvesturhluta Frakklands. Carro mun vinna með matreiðsluteymi TIDES að sérstökum matseðli þar sem hráefni frá Bretaníu og Íslandi verður í forgrunni, að því er fram kemur í tilkynningu frá sendiráðinu.
Nicolas Carro verður gestakokkur á TIDES dagana 20. og 21. nóvember og býður upp á sérstakan matseðil í samstarfi við matreiðsluteymi staðarins. Ljósmynd/Aðsend
Sneri aftur á heimaslóðir
Carro ólst upp í bændafjölskyldu í Bretaníu og hefur meðal annars starfað hjá Alain Passard og Olivier Nasti. Árið 2019 sneri hann aftur á heimaslóðir og tók við veitingastaðnum Hôtel de Carantec í bænum Carantec við Morlaix-flóa. Veitingastaðurinn hlaut Michelin-stjörnu árið 2020.
Carantec stendur við Morlaix-flóa í Bretaníu. Þar starfar Nicolas Carro á veitingastað Hôtel de Carantec, sem hlaut Michelin-stjörnu árið 2020. Ljósmynd/Aðsend
Staðbundið hráefni skipar stóran sess í matargerð Carro, bæði sjávarfang og afurðir úr sveitum héraðsins. Í umfjöllun Michelin-handbókarinnar er meðal annars hrósað fágun réttanna, nákvæmri eldun og samspili ólíkrar áferðar.
Veitingastaður Nicolas Carro á Hôtel de Carantec er við Morlaix-flóa í Bretaníu. Hráefni úr sjó og sveitum héraðsins er í forgrunni í matargerð hans. Ljósmynd/Aðsend
Smakk og pönnukökur frá Bretaníu
Fleiri viðburðir verða á dagskrá Keims í næstu viku. Þriðjudaginn 17. nóvember klukkan 20.30 verður kynning á bretónskum matarsiðum hjá Alliance française, í samstarfi við Reykjavík Accueil og franska sendiráðið.
Þar verður boðið upp á smakk af vörum frá héraðinu og bretónskar pönnukökur. Viðburðurinn fer fram á frönsku og er sætafjöldi takmarkaður. Skráningar er krafist fyrirfram.
Þar verður einnig kynning og smökkun á vörum frá franska sælkeraframleiðandanum La Belle-Iloise frá frönsku sælkeraversluninni Hyalin að Skólavörðustíg 4A.
Carro mun einnig heimsækja Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi og halda sérkennslu í bretónskri matargerð fyrir nemendur.
Á Keimi er árlega sjónum beint að matarmenningu tiltekins héraðs í Frakklandi. Markmið hátíðarinnar er að kynna fjölbreytileika franskrar matargerðar og efla menningartengsl landanna.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



