112 aftur orðið virkt úr öllum heimasímum
Innlent | mbl | 13.11.2026 | 16:27 | Uppfært 17:58
Númerið 112 er að mestu komið í lag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Búið er að komast að því í hverju bilunin á neyðarnúmerinu 112 felst að því er fram kemur í nýrri tilkynningu á Facebook-síðu Neyðarlínunnar.
Er nú unnið að lagfæringu, en bilunin kom upp fyrir um klukkustund. Frá klukkan 16:10 hefur verið hægt að hringja í 112 úr öllum heimasímum og að mestu á farsímakerfunum.
Þeim sem ekki ná í gegnum númer 112 er bent á númerið 599-0112 eða í gegnum netspjallið á 112.is eða appi Neyðarlínunnar.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗