Hefur áhyggjur af ráðningu United

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino. AFP/Darren Staples

Paul Scholes, fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins og Manchester United, styður að Mauricio Pochettino verði næsti knattspyrnustjóri United en óttast að félagið hafi leitað til hans of seint.

„Ég held að hann hafi þá útgeislun sem þarf til að stýra stóru knattspyrnufélagi eins og Manchester United,“ sagði Scholes í hlaðvarpinu The Good, The Bad and The Football.

„Eina litla áhyggjuefnið mitt er að ráðningin komi of seint. Pochettino er frábær knattspyrnustjóri. Ég hef bara smá áhyggjur af því að við séum ekki að fá hans bestu ár.“

United rak Michael Carrick á fimmtudag. „Hann veit að það dugar einfaldlega ekki að vinna aðeins einn leik af fyrstu tíu deildarleikjunum,“ sagði miðjumaðurinn fyrrverandi.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅