Áritar bækur með blóði rithöfundarins
Ragnar Jónasson rithöfundur hefur í haust áritað bækur víða um heim með penna sem breski rithöfundurinn Anthony Horowitz gaf honum í afmælisgjöf. Í pennanum er rautt blek sem ber heiti sem hæfir glæpasagnahöfundi sérstaklega vel: „Blóð rithöfundarins“.
Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem Ragnar og Yrsa Sigurðardóttir ræða bækur sínar og ritstörf. Þegar þáttarstjórnandi biður þau um að árita nýjustu bækur sínar berst talið að pennum, bleki og loks einu þekktasta morðmáli síðustu aldar.
„Ég ætla að brjóta hefð í þessu, ég ætla að fá ykkur til að árita fyrir mig,“ segir Stefán Einar og kveðst hafa sérstakan áhuga á pennanum sem Ragnar hefur meðferðis. Þeir séu báðir áhugamenn um penna.
Gjöf frá Horowitz
Ragnar segir að tengsl pennans við nýjustu bók sína séu nokkur. Á kápu hennar sé að finna ummæli eftir Horowitz, sem hafi lesið bókina í enskri þýðingu fyrir útgáfu hennar í Bretlandi.
„Hann las hana og sagði eitthvað fallegt um hana og hann gaf mér þennan penna í afmælisgjöf í sumar,“ segir Ragnar.
Síðan bætir hann við að í pennanum sé „blóð rithöfundarins“. Stefán Einar spyr hvort blekið heiti það í raun og Ragnar staðfestir það. Það sé rautt, þótt hann geti ekki fullyrt um að þar sé á ferðinni blóð úr gefandanum eða einhverjum öðrum.
Þegar spurt er hvernig hann hyggist fylla á pennann stendur ekki á svarinu.
„Ég þarf að tala við Anthony þegar þar að kemur.“
Stefán Einar stingur þá upp á að Blóðbankinn gæti hugsanlega komið að gagni.
Minning um Kennedy
Annar penni leiðir samtalið í aðra átt. Stefán Einar sýnir Yrsu minningarpenna um John F. Kennedy og bendir á að í sögu forsetans sé efniviður í glæpasögur.
Yrsa rifjar í framhaldinu upp frásögn móður sinnar af því þegar fréttirnar af morðinu á Kennedy bárust árið 1963.
„Mamma man mjög sterkt eftir að vera að labba með mig í kerru þegar [hún] fékk þessar fréttir,“ segir Yrsa.
Þau ræða stuttlega morðið áður en talið berst aftur að skriffærunum. Stefán Einar segir Ragnar njóta þess að vera rétthentur og geta því skrifað með lindarpenna. Sjálfur sé hann örvhentur og verði að nota kúlupenna.
Ragnar tekur undir að sérstök ánægja fylgi því að skrifa með slíkum penna. Afmælisgjöfin hefur enda fylgt honum á ferðalögum haustsins og komið við sögu þegar lesendur hafa fengið bækur sínar áritaðar.
„Með þessum penna hef ég verið að árita bækur um allan heim í haust, með þessu bleki, þannig að þegar það klárast veit ég ekki hvað gerist.“
Viðtalið við Ragnar og Yrsu má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗