Konur inn úr kuldanum í Sundhöllinni
Framkvæmdum við kvennaklefann í Sundhöll Reykjavíkur er nú lokið og var hann opnaður í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Framkvæmdir við búningsklefa í Sundhöllinni hafa staðið yfir frá því í sumar og vegna þeirra hefur þurft að takmarka fjölda gesta í lauginni.
Þá þurfti að skerða afgreiðslutíma hennar á virkum dögum frá því að skólasund hófst í ágúst.
Framkvæmdirnar reyndust umfangsmeiri
Í tilkynningunni segir að framkvæmdirnar hafi reynst umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir en nú geti gestir Sundhallarinnar aftur sótt hana á hefðbundnum afgreiðslutíma og án sérstakra fjöldatakmarkana.
Þá segir að með opnun kvennaklefans geti konur aftur nýtt búningsaðstöðu sína innandyra en tímabundið voru báðir útiklefarnir nýttir sem kvennaklefar.
Nú standi körlum og konum til boða að nýta útiklefana, hvorum sinn klefa.
Aukinheldur segir að framkvæmdir við karlaklefann standi enn yfir og stefnt sé að því að opna hann snemma á nýju ári.
Þangað til munu karlar áfram nýta gamla búningsklefann á neðri hæð Sundhallarinnar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗