Svarthöfði skrifar: Þingmennskan er hundleiðinleg

Svarthöfði er þeirrar skoðunar að fá ef nokkur störf séu leiðinlegri en seta á Alþingi. Þrátt fyrir glæsta umgjörð í gömlum og nýjum byggingum og aðbúnað eins og best verður á kosið er innihald starfsins hreint og beint hundleiðinlegt.

Svarthöfði telur sig fá stuðning við þessa skoðun sína með því að horfa á fréttir Ríkisútvarpsins af þingstörfum þar sem jafnan er brugðið upp yfirlitsmyndskeiðum úr þingsal. Svipir þingmanna bera þess merki að þeir séu sárþjáðir af veru sinni í þinginu og engu líkara en að þeir séu í eins konar sjálfskipaðri þjóðarsorg.

Svarthöfði hefur nokkrum sinnum þegið fundarboð þingnefnda í nýreistri glæsihöll þingsins, Smiðju. Það verður að segja hverja sögu eins og hún er, það væri nokkuð ofmælt að halda því fram að gleðin eða hressleikinn séu þar við völd.

Blessunarlega hefur verið lítið að frétta af störfum Alþingis undanfarið, enda er varla frá miklu að segja. Ástæðan er meðal annars sú að þingmenn hafa verið uppteknir við ferðalög um heiminn. Svarthöfði skilur vel þörf þingmannanna að vera alls annars staðar en í þinghúsinu.

Svo heppilega vill til fyrir þá að reglulega eru alls kyns fundahöld út um allar trissur á vegum fjölþjóðlegs samstarfs, svo sem Norðurlandaráðsþing, allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Hvort tveggja fór nýlega fram að viðstöddu fjölmenni og íslenskir þingmenn létu sig ekki vanta. Hefðbundið starf á Alþingi lá niðri meðan á þessum fögnuðum stóð.

Fregnir af því að fjarfundabúnaður væri tiltækur og jafnvel nothæfur til að ræða við fólk í öðrum löndum, hefur líklega ekki ratað til Alþingis. Jafnvel Svarthöfði á það til að ræða við fólk með aðstoð fjarfundabúnaðar og er helst á því að það komi ekki niður á gæðum fundarins.

Nýjast í þessum efnum er ferð utanríkismálanefndar þingsins til Japans ásamt tveggja manna fylgdarliði. Ekki dugði minna en að öll nefndin færi heiminn á enda, níu þingmenn eða samtals ellefu manns.

Þarna hitti nefndin meðal annarra varavarnarmálaráðherra Japans, vinahóp Íslands á Japansþingi og kynnti sér friðarsafn í Hiroshima. Svarthöfði telur bráða nauðsyn að nefndin kynni sér í þaula varnarmál Japans þótt varamaður annist þá kynningu.

En Svarthöfði vissi ekki að sérstakur vinahópur Íslands væri starfræktur í japanska þinginu.

Hérlendis er alsiða að stofna til vinahópa, svonefnda hollvini, fyrir þær stofnanir sem höllum fæti standa eða þurfa stuðning. Dæmi um það eru Sjúkrahúsið á Akureyri, Grensásdeild og Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði.

Það blasir við Svarthöfða að Alþingi Íslendinga veitir ekki af því að til séu vinahópar þess á öðrum þjóðþingum, ef vera mætti til að létta mönnum lund í leiðinlegasta starfi sem fyrirfinnst.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅