Langar þig í veitingastaðapizzu heima? - Svona ferðu að
Guðmundur Óli Sigurjónsson, eigandi Matarkompaní, gefur góð ráð varðandi matvæli og eldamennsku í vinsælum myndböndum á TikTok.
Í nýlegu myndbandi fer hann yfir hvernig má gera veitingastaðapizzu með stökkum botni eða eins og hann segir pizzu þar sem maður heyrir braka í pizzaskorpunni.
Gummi sýnir að hann snýr pizzapönnunni á hvolf í ofninum, stillir ofninn í botn og hefur pönnuna í ofninum í 40 mínútur.
Á meðan útbýr hann pizzadeigið. Setur síðan pizzasósu, mozzarellaost, salami, mozzarellaperlur og oregano á pizzuna. Síðan fer hún í ofninn á öfuga pönnuna í 6 til 7 mínútur. Að lokum setur hann pizzaolíu á kantana og sker pizzuna.
Gummi mælir svo með að leyfa pönnunni að hitna í 2 til 4 mínútur áður en næsta pizza er sett í ofninn.
„Það sem við erum að leita að er ekki bara falleg pizza heldur við erum að leita að svona veitingastað quality crispy. Hlustið á þetta. Þetta munar svo miklu að vera með crispið þú veist, þetta er svona veitingastaðafílingurinn. Að hafa þessa skorpu, þetta er bara vá.Og þess vegna er það svona sem ég geri pizzuna.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗