Met strax í upphafi mótsins
Karlasveit ÍRB setti unglingamet í 4x50 metra fjórsundsboðsundi á Íslandsmeistaramótinu og unglingameistaramótinu í sundi í 25 metra laug í Ásvallalaug í morgun.
Sveitin synti á 1:46,36 mínútum og bætti eigið met frá árinu 2024 um 0,70 sekúndur. Hana skipuðu Denas Kazulis, Nikolai Leo Jónsson, Daði Rafn Falsson og Mikael Fannar Arnarson.
Þrír þeirra urðu einnig unglingameistarar í einstaklingsgreinum. Denas vann 50 metra skriðsund, Nikolai Leo 100 metra fjórsund og Daði Rafn 100 metra flugsund.
Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Reykjavík varð tvöfaldur unglingameistari með sigrum í 50 metra baksundi og 50 metra skriðsundi. Snævar Örn Kristmannsson úr Breiðabliki vann tvo Íslandsmeistaratitla í flokki fatlaðra, í 100 metra flugsundi og 50 metra skriðsundi í S19.
SH vann 4x50 metra fjórsundsboðsund bæði karla og kvenna. Bergur Fáfnir Bjarnason, Snorri Dagur Einarsson, Símon Elías Statkevicius og Veigar Hrafn Sigþórsson skipuðu karlasveitina. Í kvennasveitinni syntu Sólveig Freyja Hákonardóttir, Katja Lilja Andriysdóttir, Nadja Djurovic og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir.
Unglingameistarar morgunsins
- 100 metra fjórsund: Thea Sif Hjaltadóttir, Reykjavík, og Nikolai Leo Jónsson, ÍRB.
- 400 metra skriðsund: Alicija Julia Kempisty og Hólmar Grétarsson, bæði SH.
- 50 metra skriðsund: Ylfa Lind Kristmannsdóttir, Reykjavík, og Denas Kazulis, ÍRB.
- 50 metra baksund kvenna: Ylfa Lind Kristmannsdóttir, Reykjavík.
- 200 metra baksund karla: Finlay German, Reykjavík.
- 100 metra flugsund karla: Daði Rafn Falsson, ÍRB.
- 200 metra flugsund kvenna: Sólveig Freyja Hákonardóttir, SH.
- 200 metra bringusund kvenna: Auguste Balciunaite, SH.
- 100 metra bringusund karla: Karl Björnsson, SH.
Íslandsmeistarar í flokki fatlaðra
- 400 metra skriðsund: Franciszek Adam Czachorowski, ÍRB, S19.
- 50 metra baksund: Emelía Ýr Gunnarsdóttir, Fjörður, S14.
- 100 metra flugsund: Snævar Örn Kristmannsson, Breiðablik, S19.
- 50 metra skriðsund: Anna Rósa Þrastardóttir, Fjörður, S14, og Snævar Örn Kristmannsson, Breiðablik, S19.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗