Snjókoma víða um land í kvöld
Snjóa tekur víða um land í kvöld. Á Suður- og Vesturlandi verður hálfleiðinlegt veður en mun verra á Norðurlandi, þar sem talað er um stórhríð þegar líður á kvöldið.
„Síðan færist þessi versti strengur inn yfir Austurland og austurhluta landsins í nótt,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, við mbl.is. Í fyrramálið megi búast við mun skárra veðri á vesturhelmingi landsins en norðvestan illviðri á Austurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi.
Þegar líður á morgundaginn fer veður hægt skánandi fyrir austan. Þá er útlit fyrir meinlaust haustveður á sunnudag.
Viðvaranir víða um land
Birgir segir gula viðvörun vera á vesturhluta landsins sem gildi til miðnættis en appelsínugul viðvörun sé á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi.
Engin viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu en að sögn Birgis byrjar að blása köldum vindi þegar líður á kvöldið og von er á snjókomu milli klukkan 21 og 23 í kvöld.
„Það ætti að ganga frekar fljótt yfir og í fyrramálið verður þetta bara orðið eins og hefur verið í dag, einhver norðanstrekkingur og þurrt,“ segir hann.
Ábending Vegagerðarinnar til vegfarenda
Í ábendingu veðurfræðings Vegagerðarinnar til vegfarenda segir að búast megi við að færð spillist á fjallvegum, til dæmis á Öxnadalsheiði, Vatnsskarði, Möðrudalsöræfum og Steingrímsfjarðarheiði.
Stuttu síðar megi einnig búast við ófærð á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Vatnaleið.
Í nótt og í fyrramálið séu þá líkur á að færð spillist austanlands vegna snjókomu og skafrennings þar.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗